bifvélasamsetningarstjóri
ISCO 3122
Bifvélasamsetningarstjórar samræma starfsfólk sem tekur þátt í framleiðslu á vélknúnum ökutækjum og skipuleggja starfsemi þeirra. Þeir undirbúa framleiðsluskýrslur og mæla með ráðstöfunum til að draga úr kostnaði og bæta framleiðni s.s. að ráða starfsfólk, panta nýjan búnað og innleiða nýjar framleiðsluaðferðir. Þeir þjálfa starfsmenn í fyrirtækjastefnum, starfsskyldum og öryggisráðstöfunum. Þeir hafa umsjón með birgðum og hafa samskipti við aðrar deildir til að forðast óþarfa truflanir í framleiðsluferlinu.
dýrafóðursframleiðslustjóri
ISCO 3122
Dýrafóðursframleiðslustjórar hafa umsjón með framleiðsluferli dýrafóðurs. Þeir hafa eftirlit með gæðum, taka sýni fyrir rannsóknarstofur, fylgja eftir niðurstöðum frá rannsóknarstofum og gera ráðstafanir til samræmis við niðurstöðurnar.
framleiðslustjóri
ISCO 3122
Framleiðslustjórar samræma, skipuleggja og stjórna framleiðsluferlum. Þeir bera ábyrgð á að endurskoða framleiðsluáætlanir eða skipanir, ásamt því að sjá um starfsfólk á þessum framleiðslusvæðum.
framleiðslustjóri leðurvöru
ISCO 3122
Framleiðslustjórar leðurvöru hafa eftirlit með og samræma daglegar framleiðsluaðgerðir framleiðsluverksmiðju leðurvöru. Þeir hafa umsjón með gæðaeftirliti ásamt því að stjórna starfsfólki leðurvöruframleiðslu. Vinnan felur einnig í sér að skipuleggja vinnustreymi ásamt því að sjá um framleiðsluáætlun og kostnað.
framleiðslustjóri plasts og gúmmís
ISCO 3122
Framleiðslustjórar plasts og gúmmís stjórna og samræma starfsemi starfsfólks sem tekur þátt í plast- eða gúmmívöruframleiðslu, og tryggja skilvirka, örugga og kostnaðarhagkvæma vinnslu. Þeir bera ábyrgð á uppsetningu nýrra framleiðslulína og útvegun þjálfunar.
framleiðslustjóri sjóntækja
ISCO 3122
Framleiðslustjórar sjóntækna samræma, skipuleggja og stjórna framleiðsluferlum sjóntækja. Þeir sjá til þess að sjóngler sé unnið á réttan hátt og að sjóntæki séu samsett í samræmi við verklýsingu. Þeir stjórna að því er varðar aðvinnslu á framleiðslulínunni, hafa umsjón með gæðum samsettra vara og annast kostnað og auðlindastjórnun.
framleiðslustjóri skófatnaðar
ISCO 3122
Framleiðslustjórar skófatnaðar hafa eftirlit með og samræma daglega framleiðslustarfsemi í framleiðsluverksmiðju skófatnaðar. Þeir hafa umsjón með gæðaeftirliti til að tryggja að fullunna varan sé í samræmi við framleiðslutilgreiningar, og stýra starfsfólki skófatnaðar. Vinnan felur einnig í sér samningaviðræður við birgja ásamt því að sjá um framleiðsluverksmiðjur og framleiðslukostnað.
iðnaðarsamsetningarstjóri
ISCO 3122
Iðnaðarsamsetningarstjórar hafa umsjón með skipulagningu, áætlanagerð og samræmingu samsetningaraðgerða. Þeir halda utan um alla vinnustarfsemi og stýra ferlinu til að tryggja skilvirka starfsemi í því skyni að takast á við vandamál s.s. framleiðslutap. Þeir eru í forsvari fyrir iðnaðarframleiðsluna og framleiðslustjórann.
járnbrautarvagnasamsetningarstjóri
ISCO 3122
Járnbrautarvagnasasetningarstjórar samræma starfsmenn sem taka þátt í framleiðslu járnbrautarvagna og skipuleggja starfsemi þeirra. Þeir undirbúa framleiðsluskýrslur og mæla með ráðstöfunum til að draga úr kostnaði og bæta framleiðni s.s. að ráða starfsfólk, panta nýjan búnað og innleiða nýjar framleiðsluaðferðir. Þeir þjálfa starfsmenn í fyrirtækjastefnum, starfsskyldum og öryggisráðstöfunum. Þeir hafa umsjón með birgðum og hafa samskipti við aðrar deildir til að forðast óþarfa truflanir í framleiðsluferlinu.
maltverksmiðjustjóri
ISCO 3122
Maltverksmiðjustjórar hafa umsjón með möltunarferlinu í heilleika sínum. Þeir hafa yfirumsjón með bleytingu, spírun og hitun. Þeir hafa eftirlit með öllum ferlabreytunum með það að markmiði mæta kröfum viðskiptavina. Þeir veita aðstoð og leiðsögn til starfsmanna maltverksmiðjuframleiðslu og tryggja að þeir starfi á öruggan og faglegan hátt.
mjólkurframleiðslutæknir
ISCO 3122
Mjólkurframleiðslutæknar hafa eftirlit með og samræma framleiðsluferli, aðgerðir og viðhaldsstarfsmenn í mjólkur, osta, ís og/eða öðrum mjólkurframleiðsluverksmiðjum. Þeir aðstoða matvælatæknifræðinga við að bæta ferli, þróa nýjar matvælavörur og koma á verklagsreglum og stöðlum fyrir framleiðslu og pökkun.
rafbúnaðarframleiðslustjóri
ISCO 3122
Rafbúnaðarframleiðslustjórar samræma, skipuleggja og stjórna framleiðsluferli rafmagnsbúnaðar. Þeir stjórna að því er varðar aðvinnslu á framleiðslulínunni, hafa umsjón með gæðum samsettra vara og annast kostnað og auðlindastjórnun.
rafeindatækniframleiðslustjóri
ISCO 3122
Rafeindatækniframleiðslustjórar samræma, skipuleggja og stjórna rafeindartækniframleiðsluferli. Þeir stjórna að því er varðar aðvinnslu á framleiðslulínunni, hafa umsjón með gæðum samsettra vara og annast kostnað og auðlindastjórnun.
rekstrarstjóri véla
ISCO 3122
Rekstrarstjórar véla samræma og stjórna starfsmönnum sem setja upp og vinna á vélum. Þeir hafa eftirlit með framleiðsluferlinu og flæði efna og tryggja að vörurnar uppfylli skilyrðin.
samsetningarstjóri flugtækja
ISCO 3122
Samsetningarstjórar flugtækja samræma starfsmenn sem taka þátt í framleiðslu loftfara og skipuleggja starfsemi þeirra. Þeir undirbúa framleiðsluskýrslur og mæla með ráðstöfunum til að draga úr kostnaði og bæta framleiðni s.s. að ráða starfsfólk, panta nýjan búnað og innleiða nýjar framleiðsluaðferðir. Þeir þjálfa starfsmenn í fyrirtækjastefnum, starfsskyldum og öryggisráðstöfunum. Þeir hafa umsjón með birgðum og hafa samskipti við aðrar deildir til að forðast óþarfa truflanir í framleiðsluferlinu.
samsetningarstjóri geymisbúnaðar
ISCO 3122
Samsetningarstjórar geymisbúnaðar hafa eftirlit með samsetningarferli geyma s.s. hitavatnsgeyma eða þrýstihylkja. Þeir þjálfa og kenna starfsmönnum sem taka þátt í uppsetningu, til þess að ná framleiðslumarkmiðum.
samsetningarstjóri nákvæmnisvéla
ISCO 3122
Samsetningarstjórar nákvæmnisvéla hafa umsjón með, þjálfa og stýra starfsmönnum sem setja saman flókna hluta smárra véla, s.s. mælingar- eða eftirlitsvéla.
samsetningarstjóri skófatnaðar
ISCO 3122
Samsetningarstjóri skófatnaðar athugar og samræmir starfsemi rekstraraðila í vinnuherbergi. Þeir bera ábyrgð á að samræma starfsemi smíðadeildar með fyrrverandi og síðari starfsemi framleiðslukeðjunnar. Þeir rannsaka yfirleður og sóla sem á að smíða og gefa leiðbeiningar um hvernig skal framleiða þá. Þessir umsjónarmenn hafa umsjón með að sjá smíðadeildum fyrir yfirleðri, líkönum, leggjum, borðum og smátækjum til meðhöndlunar, og þeir hafa einnig umsjón með gæðastjórnun smíðinnar.
samsetningarstjóri véla
ISCO 3122
Samsetningarstjórar véla hafa eftirlit með vélasamsetningarferlinu. Þeir þjálfa og kenna samsetningarstarfsmönnum til að ná framleiðslumarkmiðum.
skipuleggjandi matvælaframleiðslu
ISCO 3122
Skipuleggjendur matvælaframleiðslu undirbúa framleiðsluáætlanir, meta allar breyturnar við ferlið og leggja sig fram við að tryggja að markmið um framleiðslu náist.
umsjónarmaður skipasamsetningar
ISCO 3122
Umsjónarmenn skipasamsetningar samhæfa starfsmenn sem taka þátt í framleiðslu skipa og báta og skrá starfsemi þeirra. Þeir undirbúa framleiðsluskýrslur og mæla með ráðstöfunum til að draga úr kostnaði og auka framleiðni. Umsjónarmenn skipasamsetningar þjálfa starfsfólk í fyrirtækjastefnum, starfsskyldum og öryggisráðstöfunum. Þeir hafa eftirlit með því að farið sé að reglum um starfsaðferðir og verkfræði. Umsjónarmenn skipasamsetningar hafa umsjón með birgðum og hafa samskipti við aðrar deildir til að forðast óþarfa truflanir í framleiðsluferlinu.
verkstjóri á endurvinnslustöð
ISCO 3122
Umsjónarmenn meðhöndlunar úrgangs samræma úrgangssöfnun, endurvinnslu og förgunarstöðvar. Þeir hafa umsjón með úrgangsstjórnunaraðgerðum, og tryggja að farið sé að umhverfisstöðlum, og hafa umsjón með starfsfólki. Þeir aðstoða við þróun á aðferðum við meðhöndlun úrgangs, sem miða að því að draga úr losun úrgangs, og aðstoða til að koma í veg fyrir brot á löggjöf um meðhöndlun úrgangs.
verkstjóri í efnavinnslustöð
ISCO 3122
Efnavinnslustjórar samræma starfsemina og starfsfólkið sem tekur þátt í efnaframleiðsluferlinu, og tryggja að framleiðslumarkmiðum og tímamörkum sé náð. Þeir hafa eftirlit með gæðum og hámarka vinnslu efnablanda með því að tryggja að skilgreindar prófanir, greiningar og gæðaeftirlit sé framkvæmt.
verkstjóri í málmsmiðju
ISCO 3122
Málmframleiðslustjórar hafa umsjón með daglegu vinnuferli og starfsemi starfsmanna í málmsmíðaverksmiðju. Þeir hafa umsjón með starfsfólki, hanna vinnuáætlanir, viðhalda öruggu vinnuumhverfi og þjóna hlutverki fyrsta, aðgengilegasta forsvarsmanni stjórnunar sem starfsmenn geta haft samband við þegar þörf er á.
verkstjóri í pappírsverksmiðju
ISCO 3122
Umsjónarmenn pappírsverksmiðju samræma og hafa umsjón með starfsemi í pappírsverksmiðjum á meðan á framleiðslu vara stendur, s.s. bylgjupappa, pappakassa eða bólstruðum umslögum. Þeir sjá til þess að framleiðslumarkmiðum sé náð, s.s. magni og gæðum vara, tímanleika og kostnaðarhagkvæmni. Þeir hafa skýra yfirsýn yfir yfirstandandi ferla og taka skjótar ákvarðanir til að leysa vandamál.
verkstjóri í prentframleiðslu
ISCO 3122
Umsjónarmenn prentstofu skipuleggja starfsemi eins eða fleiri teyma í vélarvinnslu við prentun, bindingu bóka og frágang á prentuðu efni. Markmið þeirra er að hámarka framleiðsluferli.
verkstjóri í timburframleiðslu
ISCO 3122
Viðarframleiðslustjórar hafa eftirlit með ferlunum sem taka þátt í umbreytingu felldra trjáa í nýtanlegt timbur. Þeir fylgja framleiðsluferlinu og taka skjótar ákvarðanir til að leysa vandamál. Þeir sjá til þess að markmið um framleiðslu, s.s. magn og gæði framleiðsluvara, tímanleiki og kostnaðarhagkvæmni, náist.
verkstjóri í áfengisverksmiðju
ISCO 3122
Umsjónarmenn áfengisverksmiðju samræma framleiðsluferli sem fara með framleiðslu brenndra drykkja og stjórna starfsmönnum sem taka þátt í ferlinu. Þeir yfirfara eimað áfengi sem framleitt er í tilgreindum fjölda og styrkleika.
viðarsamsetningarstjóri
ISCO 3122
Viðarsamsetningarstjórar hafa eftirlit með mismunandi ferlum í samsetningu viðarafurða. Þeir hafa ítarlegan skilning á framleiðsluferlum undir eftirliti þeirra og taka skjótar ákvarðanir þegar þörf er á.