eftirlitsmaður með fiskeldi
ISCO 3142
Fiskeldisstöðvarstjórar hafa umsjón með framleiðsluferlum í fiskeldisstarfsemi á stórum mælikvarða og rannsaka fiskeldisstöðvar til þess að viðhalda og bæta frammistöðu. Þeir viðhalda heilbrigði, velferð og öryggi vinnustaðarins, þróa stjórnunaráætlanir til að draga úr áhættu af völdum plágu, afætu og sjúkdóma og hafa eftirlit með losun bæði lífræns- og efnaúrgangs og viðhaldi búnaðar og véla.
gæðaeftirlitsmaður fiskeldis
ISCO 3142
Gæðaeftirlitsmenn fiskeldis ákvarða staðla og stefnur fyrir gæðaeftirlit með framleiðslu fiskeldislífvera. Þeir prófa og rannsaka stofninn í samræmi við meginreglur og öryggisreglugerðir við greiningu áhættuþátta og mikilvægra eftirlitsstaða.
landbúnaðartæknir
ISCO 3142
Landbúnaðartæknar safna saman og stjórna tilraunum og prófunum á landbúnaðar- og fiskeldissýnum. Þeir veita vísindamönnum og bændum stuðning og greina einnig og gefa skýrslur um umhverfisaðstæður þar sem sýni eru tekin.
vínræktarráðgjafi
ISCO 3142
Vínræktarráðgjafar veita ráðgjöf um bætingu vínekruframleiðslu og víngerðar.