ÍSTARF21 · Stig 4 · starfaflokkur
3221
Störf sjúkraliða
Störf sjúkraliða fela í sér að veita sjúklingum, öldruðum og fólki með fötlun aðhlynningu, aðstoð og endurhæfingu.
Verkefni
- að veita sjúklingum aðhlynningu, umönnun, meðferð og heilbrigðisráðgjöf samkvæmt áætlunum hjúkrunarfræðinga og lækna,
- að hafa eftirlit með ástandi sjúklinga og svörun við meðferð,
- að hreinsa sár og setja á sáraumbúðir,
- að uppfæra upplýsingar um ástand og meðferðir sjúklinga í skráningarkerfum,
- að undirbúa sjúklinga fyrir aðgerðir og rannsóknir og aðstoða hjúkrunarfræðinga og lækna í aðgerðum,
- að aðstoða við skyndihjálp í neyðartilvikum.
Dæmi um starfsheiti
sjúkraliði
Aðgangur um API