aðstoðarmaður hnykklæknis
ISCO 3259
Aðstoðarmenn hnykklæknis framkvæma venjubundin og stjórnunarleg verkefni til að styðja við umönnun sjúklinga og vinna einungis undir leiðsögn og umsjón hnykklæknis eða sérhæfðs hnykklæknis. Þeir geta tekið viðtöl við sjúklinga, haldið skrár yfir sögu tilfella, aðstoðað hnykklækna eða sérhæfða hnykklækna við að rannsaka sjúklinga og framkvæmt stjórnunarverkefni. Aðstoðarmenn hnykklæknis vinna innan skilgreinds ramma og nota viðurkenndar aðferðir og verklagsreglur.
aðstoðarmaður klínísks sálfræðings
ISCO 3259
Aðstoðarmenn klínísks sálfræðings aðstoða sálfræðinga við vinnu sína. Þeir vinna á heilbrigðisþjónustustofum eða á einkastofum þar sem þeir aðstoða sálfræðinga við meðferð sjúklinga. Aðstoðarmenn klínísks sálfræðings eru sérfræðingar í heilbrigðisþjónustu sem geta metið sjúklinga með sálfræðilegum prófunum og aðstoðað við meðferð, ásamt því að framkvæma stjórnunaraðgerðir.
aðstoðarmaður næringarfræðings
ISCO 3259
Aðstoðarmenn næringarfræðings aðstoða næringarfræðinga við að skipuleggja næringaráætlanir og við skipulagningu matseðla fyrir sjúklinga sem hluti af heildarmeðferðaráætlun, undir eftirliti næringarfræðings. Aðstoðarmenn næringarfræðings, undir eftirliti næringarfræðings, aðstoða næringarfræðinga við yfirferð sjúklinga, skipulagningu á útskrift frá inntöku næringarefna, og klínískri endurskoðun sem inniheldur næringarskimun.
aðstoðarmaður svæfingarlæknis
ISCO 3259
Aðstoðarmenn svæfingalæknis aðstoða sérhæfða lækna í svæfingarlæknisfræði. Þeir undirbúa skurðstofur og aðrar sérhæfðar læknastöðvar fyrir svæfingarferli, undirbúa búnaðinn sem er nauðsynlegur til svæfingar, og aðstoða við að framkalla og viðhalda fullnægjandi aðferðum til svæfingar og eftir svæfingu. Þeir gera það undir eftirliti og samkvæmt fyrirmælum læknis.
starfsmaður við skimun fyrir covid
ISCO 3259
Starfsmenn við covid-skimun skima fyrir Covid-sjúkdómnum með því að taka stroksýni í nefi eða hálsi. Meðfram sýnatökunni leggja þeir heilsutengdar spurningar fyrir einstaklingana og slá allar upplýsingarnar inn í stafræn tæki.
starfsmaður við skimun fyrir hita
ISCO 3259
Starfsmenn við sótthitaskimun hafa með höndum hitamælingar á starfsfólki eða gestum sem koma í húsakynni stofnunar/fyrirtækis eða í opinbert rými, en sú ráðstöfun er þáttur í að koma í veg fyrir útbreiðslu smitsjúkdóma í einkalegu og opinberu rými.
öndunarmeðferðartæknir
ISCO 3259
Öndunarmeðferðartæknar aðstoða lækna og skurðlækna við meðferð öndunarvandamála. Þeir vinna á sjúkrahúsum og læknastofum þar sem þeir vinna með læknabúnað til að prófa öndunarástand sjúklinga og aðstoða við meðferð þeirra. Öndunarmeðferðartæknar sinna einnig öndunarbúnaði og vélum meðan á aðgerð stendur.