alþjóðaskiptinemafulltrúi
ISCO 3343
Alþjóðaskiptinemafulltrúar leiða heildarferli alþjóðlega skiptinámsins fyrir skiptinemann. Þeir stýra umsóknum og inngöngu námsmannsins, skipuleggja gistingu, hvort sem það er á framhaldsskóla- eða háskólalóð eða með gestafjölskyldu, og meðhöndla alla stjórnun er varðar þessar aðgerðir, að meðtöldum einkunnum nemandans og opinberrar brottfarar. Þeir vinna sem leiðbeinendur fyrir (ungu) alþjóðlegu nemendurna í gegnum menningarlegu aðlögunina þeirra.
aðstoðarmaður aðfangakeðju
ISCO 3343
Aðstoðarmenn aðfangakeðju vinna náið saman með stjórnendum í rekstrarferlinu, aðallega við innkaupa- framleiðslu og dreifingarferli. Þeir hjálpa til við stjórnunarlega og hagnýta eftirfylgni aðgerða s.s. reikningsgerð, uppsetningu og undirbúning samninga og innkaupapantana, afstemmingu birgða á móti skjölum og samskipti við dreifingarleiðir.
aðstoðarmaður framkvæmdastjóra
ISCO 3343
Aðstoðarmenn framkvæmdastjóra eru háþróaðir stjórnunarfagmenn sem starfa mað æðstu stjórnendum eða í alþjóðlegri aðstöðu í hinum ýmsu atvinnugreinum. Þeir skipuleggja fundi, skipuleggja og viðhalda skrám, skipuleggja ferðir, þjálfa starfsfólk, eiga samskipti á öðrum tungumálum og stjórna daglegum rekstri skrifstofunnar.
aðstoðarmaður innkaupafulltrúa
ISCO 3343
Stuðningsfulltrúar innkaupateyma eru starfsmönnum innkaupateymisins til aðstoðar í innkaupaferlum, ganga úr skugga um að öll innkaupaskjöl uppfylli kröfur um málsmeðferð, tæknilegar og lagalegar kröfur, og að fundir og önnur samskipti séu vel skipulögð.
aðstoðarmaður ritstjórnar
ISCO 3343
Aðstoðarmenn ritstjórnar styðja við starfsmenn ritstjórnar á öllum stigum birtingarferlis dagblaða, vefsíðu, fréttabréfa á netinu, bóka og tímarita. Þeir safna, fara yfir og vinna úr upplýsingum, afla leyfa og sjá um réttindamál. Aðstoðarmenn ritstjórnar vinna sem tengiliður fyrir starfsmenn ritstjórnar, skipuleggja stefnumót og viðtöl. Þeir prófarkalesa og gefa ráðleggingar um innihaldið.
aðstoðarmaður stjórnanda
ISCO 3343
Aðstoðarmenn stjórnenda framkvæma mismunandi tegundir starfa, venjulega undir almennu eftirliti. Þeir framkvæma stjórnunarverkefni og styðja stjórnendur til að tryggja að starfsemi deildarinnar í heild gangi snurðulaust fyrir sig.
aðstoðarmaður á skrifstofu
ISCO 3343
Stjórnunarlegir aðstoðarmenn veita yfirmönnum aðstoð við stjórnsýslu- og skrifstofustörf. Þeir sinna margvíslegum störfum, s.s. að svara símtölum, taka á móti og leiðbeina gestum, panta skrifstofubirgðir, sjá til þess að öll starfsemi á skrifstofunni gangi snurðulaust fyrir sig og tryggja að búnaður og tæki starfi rétt.
aðstoðarskólastjóri
ISCO 3343
Menntastjórnendur skipuleggja og hafa umsjón með stjórnun, stuðningskerfum og (námsmanns) starfsemi menntastofnunar. Þeir framkvæma ýmis verkefni á sviði stjórnsýslu, skrifstofu, fjármála eða annars konar stuðningsverkefni til að gera kleift að reka skólann með skilvirkum og kostnaðarhagkvæmum hætti. Þeir geta hjálpað til við að ráða nema, við námsmannatengsl, fjármögnun, vinnu í nefndum, þ.m.t. fræðinefndir og gæðatryggingu.
fulltrúi í verkefnastýringu
ISCO 3343
Verkefnisstuðningsfulltrúar láta í té ýmiss konar þjónustu svo að leysa megi verkefni á farsælan hátt, sem þátttakendur í láréttri verkefnastjórnun. Þeir veita verkefnastjórum og öðrum starfsmönnum stuðning, aðstoð og þjálfun varðandi umsýslu, sjá um skjalahald verkefnisins og aðstoða verkefnisstjórann við gerð verkefnisáætlunar, verðmætaskipulag, samhæfingu og skýrslugjöf. Verkefnisstuðningsfulltrúar sjá um aðgerðir varðandi gæðatryggingu og fylgjast með að leiðbeiningar um aðferðafræði séu virtar svo og önnur skipulagstengd viðmið. Þeir veita einnig ráðleggingar um verkefnastjórnunarverkfæri og tengda stjórnsýslu.
réttarritari
ISCO 3343
Dómritarar rita í ritvinnsluforriti, eða einhverjum öðrum hugbúnaði, hvert einasta orð sem nefnt er í dómssal. Þeir umrita það réttarhald sem á sér stað í dómssal til þess að gefa út opinbert réttarhald lagalega málsins. Þeir gera því kleift að hægt sé að rannsaka málið frekar á nákvæman hátt.
starfsmaður við fjáröflun
ISCO 3343
Aðstoðarmenn við fjáröflun veita stjórnunarstuðning til yfirmanna fjáröflunar. Þeir einblína á tilvonandi styrktaraðila eða stuðningsaðila með því að nota kannanir. Þeir vinna úr framlags- og styrktargreiðslum, viðhalda rafrænu- og pappírsskjalakerfi fyrir alla styrki og framlög, viðurkenna styrkjendur og skrifa þakkarbréf og viðhalda fjáröflunarskjölum.
textaafritari
ISCO 3343
Textaafritarar laga skjöl sem búin eru til af dómsriturum til þess að búa til úr þeim lesanlegt faglegt lagaskjal. Þeir hlusta eða lesa skýrslurnar sem þeim eru gefnar til þess að bæta við greinarmerkjum, orðum sem vantar, uppsetningu, og bæta nákvæmni skjalsins.