barnarverndarfulltrúi
ISCO 3412
Barnaverndarstarfsmenn veita börnum og fjölskyldum þeirra snemmtæk inngrip og stuðning til að bæta félagslega og sálræna getu þeirra. Þeir hafa það að markmiði að hámarka velferð fjölskyldunnar og vernda börn gegn misnotkun og vanrækslu. Þeir eru talsmenn barna þannig að réttindi þeirra séu virt innan og utan fjölskyldunnar. Þeir geta aðstoðað einstæða foreldra eða fundið fósturheimili fyrir yfirgefin eða misnotuð börn.
fjölskylduráðgjafi
ISCO 3412
Fjölskyldustuðningsfulltrúar veita raunhæfar ráðleggingar og tilfinningalegan stuðning fjölskyldum sem eiga við erfiðleika að stríða, svo sem fíkn, fötlun, veikindi, foreldra í fangelsi, hjónabands- eða fjárhagserfiðleika. Þeir gefa ráð um bestu lausnina fyrir börnin að því er varðar spurninguna um að dvelja hjá fjölskyldu sinni eða ekki, sem þeir byggja á mati á fjölskylduaðstæðum. Fjölskyldustuðningsfulltrúar veita einnig upplýsingar um tiltæka þjónustu með hliðsjón af sérstökum þörfum fjölskyldunnar og ráðleggingum félagsráðgjafans.
forráðamaður
ISCO 3412
Forráðamenn aðstoða og styðja ólögráða börn, geðfatlaða einstaklinga eða óvinnufært eldra fólk í persónulegu lífi þess. Þeir geta stjórnað eignum þeirra, aðstoðað við daglega fjárhagsstjórnun og aðstoðað við læknisfræðilegar eða félagslegar þarfir þess.
félagsliði
ISCO 3412
Aðstoðarmenn félagsráðgjafa eru starfsmenntaðir fagmenn sem stuðla að félagslegum breytingum og þroska, félagslegri samheldni og valdeflingu og frelsun fólks. Þeir eiga samskipti við einstaklinga, fjölskyldur, hópa, samtök og samfélög til að aðstoða við að veita ýmis konar meðferð og ráðgjöf, hópastarf og samfélagsstarf. Aðstoðarmenn félagsráðgjafa aðstoða við leiðsögn starfsfólks, hjálpa skjólstæðingum að nota þjónustu til að krefjast bóta, fá aðgang að úrræðum samfélagsins, finna störf og þjálfun, afla lögfræðiráðgjafar eða fást við aðrar deildir sveitarfélaga. Þeir aðstoða og vinna með félagsráðgjöfum.
leiðbeinandi sjálfboðaliða
ISCO 3412
Leiðbeinendur sjálfboðaliða leiðbeina sjálfboðaliðum meðan þeir eru að aðlagast, kynna þeim menningu nýs umhverfis og styðja þá í að bregðast við stjórnsýslulegum, tæknilegum og raunhæfum þörfum samfélagsins. Þeir styðja við sjálfboðaliðana í því menntunar- og þroskaferli sem fylgir sjálfboðareynslunni.
markþjálfi
ISCO 3412
Markþjálfar hjálpa skjólstæðingum að setja skýr markmið fyrir einstaklingsþroska og gera þeim kleift að ná markmiðum sínum og auka víðsýni þeirra. Þeir veita ráðgjöf og leiðbeiningar og koma á fót framvinduskýrslum til að fylgjast með árangri viðskiptavina sinna.
starfsmaður við hjálparsíma
ISCO 3412
Starfsmenn við neyðarsíma vegna áfallahjálpar veita ráðgjöf og stuðning til innhringjenda í áfalli. Þeir þurfa að fjalla um margs konar málefni á borð við misnotkun, þunglyndi og fjárhagsleg vandamál. Starfsmenn við neyðarsíma halda skrár yfir símtöl í samræmi við reglur og persónuverndarstefnu.
starfsmaður á sambýli
ISCO 3412
Stuðningsfulltrúar í húsnæðismálum veita öldruðum, fólki með líkamlega skerðingu eða námsörðugleika, heimilislausum, fyrrverandi fíkniefnaneytendum, fyrrverandi áfengisfíklum eða fyrrverandi brotamönnum aðstoð og stuðning í húsnæðismálum.
starfsmaður á sambýli fyrir börn
ISCO 3412
Starfsmenn barnaverndar ráðleggja og styðja börn sem eru með líkamlega eða andlega fötlun. Þeir fylgjast með framvindu þeirra og veita þeim umönnun í jákvæðu umhverfi. Þeir hafa samband við fjölskyldurnar til að skipuleggja heimsóknir.
starfsmaður á öldrunarheimili
ISCO 3412
Stuðningsaðilar á öldrunarheimili ráðleggja og styðja aldraða sem eru með líkamlega eða andlega fötlun. Þeir fylgjast með framvindu þeirra og veita þeim umönnun í jákvæðu umhverfi. Þeir hafa samband við fjölskyldur skjólstæðinga til að skipuleggja heimsóknir.
starfsmaður í félagsþjónustu aldraðra
ISCO 3412
Starfsmenn í félagsþjónustu aldraðra sjá um mat og umönnunarstjórnun í samfélögum aldraðra með líkamlega skerðingu eða þeirra sem eru að ná sér eftir veikindi. Þeir miða að því að bæta líf þeirra í samfélaginu og gera þeim kleift að búa við öryggi og sjálfstæði á eigin heimili.
stuðningsfulltrúi
ISCO 3412
Stuðningsfulltrúar veita einstaklingum á öllum aldri með andlega eða líkamlega skerðingu persónulega aðstoð. Þeir vinna með öðru heilbrigðisfagfólki til að hámarka líkamlega og andlega velferð skjólstæðinga. Meðal starfa þeirra er að baða, lyfta, færa, klæða eða gefa fötluðu fólki að borða.
stuðningsráðgjafi
ISCO 3412
Félagsliðar veita aðstoð og hjálpa fólki við umönnunarþjónustu. Þeir aðstoða fólk við að lifa innihaldsríku og virðingarverðu lífi í samfélaginu. Þeir aðstoða ungabörn, ung börn, unglinga, fullornða og eldra fólk. Þeir huga að sálfræðilegum, félagslegum, tilfinningalegum og líkamlegum þörfum þjónustuþega. Þeir vinna á ólíkum sviðum með einstaklingum, fjölskyldum, hópum, fyrirtækjum og samfélögum.
stuðningsráðgjafi vegna fósturmála
ISCO 3412
Stuðningsráðgjafar vegna fósturmála aðstoðar og styður andlega eða líkamlega misnotuð börn við löglegan aðskilnað frá foreldrum sínum. Þeir hjálpa þeim að ná sér með því að koma þeim til viðeigandi fjölskyldna og ganga úr skugga um að velferð barnanna sé forgangsverkefni.
stuðningsráðgjafi vegna geðhjálpar
ISCO 3412
Stuðningsmenn geðheilbrigðisstofnunar aðstoða og veita fólki með andlegan, tilfinningalegan eða vímuefnavanda meðferð. Þeir leggja áherslu á persónuleg mál og fylgjast með bataferli skjólstæðinga sinna og veita einnig meðferð, íhlutun vegna erfiðleika, málsvörn skjólstæðinga og menntun.
stuðningsráðgjafi á ungmennaheimili
ISCO 3412
Stuðningsráðgjafar á ungmennaheimilum veita ungu fólki sem standa frammi fyrir flóknum tilfinningalegum þörfum og sýna krefjandi hegðun aðstoð og stuðning. Þeir styðja ungmenni með námsörðugleika í námi og hvetja þá til að sinna heimilisstörfum til að aðstoða þá við að bera ábyrgð.
stuðningsráðgjafi á vistheimili
ISCO 3412
Stuðningsráðgjafi á vistheimili fyrir fullorðna veitir ráðgjöf og stuðning til handa fullorðnum í viðkvæmri stöðu sem eiga við líkamlega eða andlega örðugleika eða vímuefnamisnotkun að etja. Þeir fylgjast með framvindu þeirra og veita þeim umönnun í jákvæðu umhverfi. Þeir vinna með fjölskyldum til að styðja við þroska einstaklinga og uppfylla þarfir þeirra.
umönnunaraðili
ISCO 3412
Umönnunaraðilar veita berskjölduðum fullorðnum þjónustu, þ.m.t. veikburða öldruðum eða fötluðum sem búa við líkamlega hreyfihömlun eða endurhæfingu, í samræmi við sérstaka áætlun um að veita viðskiptavinum daglega umönnun. Þau sjá um líkamlega og andlega vellíðan viðskiptavina með því að veita þeim félagslega umönnun. Þessi þjónusta getur átt sér stað á heimilum, umönnunarheimilum eða á heimili sjúklingsins. Í tengslum við þetta síðastnefnda miða umönnunaraðilar að því að bæta líf sjúklinga í samfélaginu og tryggja að sjúklingar geti lifað á öruggan og sjálfstæðan hátt á eigin heimili.