aukaleikari
ISCO 3435
Aukaleikarar fylla upp bakgrunn eða hópa af fólki í tökum. Þeir styðja ekki beint söguþráðinn en þeir eru mikilvægir í því að skapa tiltekið andrúmsloft.
ÍSTARF21 · Stig 4 · starfaflokkur
matreiðslu Undir þennan starfaflokk falla önnur sérhæfð störf innan lista, menningar og matreiðslu sem ekki eru flokkuð annars staðar í klasa 343: Sérhæfð störf innan lista, menningar og matreiðslu. Hér undir falla störf tækni- og aðstoðarfólks við upptökur og uppsetningu leikrita, kvikmynda, sjónvarps- og auglýsingaefnis.
ISCO 3435
Aukaleikarar fylla upp bakgrunn eða hópa af fólki í tökum. Þeir styðja ekki beint söguþráðinn en þeir eru mikilvægir í því að skapa tiltekið andrúmsloft.
ISCO 3435
Aðstoðarmaður leikstjóra í myndböndum og kvikmyndum er ábyrgur fyrir skipulagningu og áætlanagerð fyrir kvikmyndatökuliðið, leikara og starfsemi á tökustað. Þeir aðstoða myndbanda- og kvikmyndaleikstjóra við að viðhalda fjárhagsáætlun og tryggja að öll framleiðslustarfsemi fari fram í samræmi við áætlunina.
ISCO 3435
Aðstoðarsviðsstjórar styðja við þarfir sviðsstjórans og framleiðslu þeirra fyrir hverja uppfærslu og þjóna sem tengiliðir milli listafólks, starfsfólks í leikhúsi og sviðsstjóra. Þeir skrá niður athugasemdir, gefa endurgjöf, samræma æfingaáætlun, skrá stöður, æfa eða endurskoða atriði, undirbúa og dreifa athugasemdum til leikara og koma á fót samskiptum milli hönnuða, framleiðsluteymis og sviðsstjóra.
ISCO 3435
Umsjónarmaður búninga aðstoða og veita leikurum stuðning fyrir, á meðan og eftir sýningu til að tryggja að búningarnir séu í samræmi við listræna sýn leikstjórans og listræna teymisins. Þeir tryggja gæði búninga, viðhalda, athuga og gera við þá og aðstoða við búningaskipti sem þurfa að gerast í flýti.
ISCO 3435
Dagskrárstjóri útsendingar býr til dagskráráætlun. Þeir ákveða hversu mikinn útsendingartíma þættir fá og hvenær þeir eru á dagskrá. Þeir byggja mat sitt á þáttum á borð við áhorf, markhópsáhorf og slíku.
ISCO 3435
Eftirlitsmenn handrita eru ábyrgir fyrir samfellu í kvikmynd eða sjónvarpsþáttum. Þeir horfa allar tökur til að ganga úr skugga um að þær séu í samræmi við handrit. Eftirlitsmenn handrita tryggja að á meðan á klippingum stendur haldi sagan sjónrænu og textalegu gildi sínu og innihaldi engar villur hvað varðar eðlilegan framgang sögunnar.
ISCO 3435
Flugeldahönnuðir þróa hugmyndir fyrir sýningar og hafa umsjón með framkvæmd þeirra. Vinna þeirra byggist rannsóknum og listrænni sýn. Hönnun þeirra er undir áhrifum annarrar hönnunar og hefur áhrif á aðra og þarf að vera í samræmi við þá hönnun og almenna listræna sýn. Af þeim sökum starfa flugeldahönnuðir náið með listrænum stjórnendum, rekstraraðilum og listrænu teymi. Á meðan á æfingum og sýningum stendur þjálfa þeir starfsmenn í að ná fram bestu tímasetningum og meðhöndlun. Flugeldahönnuðir þróa áætlanir, innkomulista og önnur skjöl til að styðja rekstraraðila og framleiðslulið. Flugeldahönnuðir starfa einnig stundum sem sjálfstæðir listamenn, skapa flugeldahönnun utan sýningarsamhengis.
ISCO 3435
Tæknimenn flugelda stjórna flugeldahluta sýningar og byggist á listrænu eða sköpunarsýn í samstarfi við sviðslistamenn. Vinna þeirra er fyrir áhrifum af og hefur áhrif á niðurstöður annarra sýninga. Því er unnið náið með hönnuðum, stjórnendum og listflytjendum. Flugeldatæknimenn undirbúa flugelda, stýra uppsetningu þeirra, stjórna tæknifólki, forrita búnaðinn og stjórna flugeldakerfinu. Notkun sprengiefna og eldfims efnis nálægt listflytjendum og áhorfendum sem gerir starfið áhættusamt.
ISCO 3435
Grímuframleiðendur búa til, aðlaga og viðhalda grímum fyrir flutninga í beinni. Þeir vinna út frá teikningum, myndum og listrænni sýn í sambland við þekkingu á mannslíkamanum til að tryggja hámarks hreyfigetu þess sem ber grímuna. Þeir starfa í nánu samstarfi við hönnuðina.
ISCO 3435
Hljóðtæknimenn koma fyrir, undirbúa, kanna og viðhalda búnaði til að bestu hljóðgæði fáist á listsýningu. Þeir vinna með róturum við að afferma, koma fyrir og starfrækja hljóðbúnað og hljóðfæri.
ISCO 3435
Hvíslarar hvísla eða gefa leikurum vísbendingar þegar þeir gleyma handriti sínu eða vanrækja að vera á réttum stað á sviðinu.
ISCO 3435
Hönnuðir flugtæknibrella hanna brellur fyrir fljúgandi fólk í sýningum og leiðbeina eða starfrækja brellurnar. Vinna þeirra byggist rannsóknum og listrænni sýn. Hönnun þeirra er undir áhrifum annarrar hönnunar og hefur áhrif á aðra og þarf að vera í samræmi við þá hönnun og almenna listræna sýn. Þeir þjálfa leikara í flugdansi og meðhöndla þá á meðan á sýningu stendur. Af þeim sökum starfa hönnuðir flugtæknibrella náið með listrænum stjórnendum, rekstraraðilum og listrænu teymi. Hönnuðir flugtæknibrella undirbúa og hafa umsjón með uppsetningu, gera öryggisathuganir og starfrækja flugtækin. Þeir hafa hlotið þjálfun til að bregðast við á viðeigandi hátt við neyðarástandi sem getur komið upp í tengslum við flugbrellur á sviði. Vinna þeirra byggist á áætlunum, fyrirmælum og útreikningum. Meðhöndlun einstaklinga hátt uppi, nálægt og fyrir ofan aðra sviðslistamenn og áhorfendur gerir starfið að áhættustarfi.
ISCO 3435
Ljósahönnuðir snjalllýsingar setja upp, undirbúa, fara yfir og viðhalda stafrænum og sjálfvirkum ljósabúnaði til að veita bestu mögulegu gæði í lýsingu á tilteknum listsýningum. Þeir starfa með róturum við að afferma, setja upp og nota ljósabúnað og -verkfæri.
ISCO 3435
Líkamslistamenn skreyta húð viðskiptavina sinna tímabundið eða varanlega. þeir nota ýmsa tækni svo sem húðflúrun eða götun. Líkamslistafólk fylgir óskum viðskiptavina sinna hvað varðar hönnun húðflúra eða götunar og yfirborðs húðarinnar og koma henni fyrir á öruggan hátt. Þeir ráðleggja einnig um aðferðir til að koma í veg fyrir sýkingar eftir aðgerðir á líkömum viðskiptavina.
ISCO 3435
Leikmunasmiðir hanna, byggja, undirbúa, aðlaga og viðhalda leikmunum sem eru notaðir á sviði og við tökur á kvikmyndum eða sjónvarpsþáttum. Leikmunir geta verið einfaldar eftirlíkingar af hlutum úr daglegu lífi eða verið raftæki, flugeldar eða aðrar tæknibrellur. Starf þeirra byggist á listrænni sýn, yfirlitsteikningum og áætlunum. Þeir vinna í nánu samstarfi við hönnuði við framleiðsluna.
ISCO 3435
Leikmunaverðir koma fyrir, undirbúa, athuga og viðhalda hlutum sem leikarar nota á sviði eða eru smáir hreyfanlegir hlutir sem kallast leikmunir. Þeir vinna með róturum við að afferma, koma fyrir og undirbúa leikmunina. Á meðan á sýningu stendur koma þeir leikmunum fyrir, rétta leikurum þá og fá þá til baka frá leikurum.
ISCO 3435
Leiktjaldatækna annast uppsetningu og undirbúning, athuga og viðhalda samsettum leiktjöldum til að láta í té bestu mögulegu leiktjöld fyrir sviðslistir. Þeir vinna með róturum við að afferma, koma fyrir og færa búnað og leikmyndir.
ISCO 3435
Ljósamenn koma fyrir, undirbúa, athuga og viðhalda búnaði til að veita bestu mögulegu gæði í lýsingu fyrir sviðslistir og kvikmyndir. Þeir starfa með róturum við að afferma, setja upp og nota ljósabúnað og -verkfæri.
ISCO 3435
Miðlasamþættingarstjórar stjórna heildarmynd, miðlunarefni og/eða samstillingu og dreifingu samskiptamerkja milli hinna ýmsu þátta sem eru að verki í listflutningi, út frá hinni listrænu eða skapandi hugmyndavinnu, í gagnvirku samspili við flytjendur. Vinna þeirra verður fyrir áhrifum af og hefur áhrif á aðra þátttakendur. Af þessum ástæðum vinna samþættingarstjórarnir náið með hönnuðum, tækjastjórum og listflytjendum. Miðlasamþættingarstjórar undirbúa tengingarnar milli mismunandi stjórnborða, hafa umsjón með uppsetningunni, stýra tækniteyminu, stilla búnaðinn og stjórna miðlasamþættingarkerfinu. Vinna þeirra byggist á áætlunum, leiðbeiningum og öðrum gögnum.
ISCO 3435
Staðgenglar koma í stað leikara áður en kvikmyndatökur hefjast. Þeir leika hlutverk leikara á meðan verið er að koma fyrir ljósum og verið er að setja upp hljóð- og myndræn kerfi svo að allt sé á réttum stað þegar kvikmyndataka hefst með leikurunum.
ISCO 3435
Stjórnendur bardagaatriða þjálfa listamenn í að leika bardagaatriði á öruggan hátt. Þeir leikstýra bardagaatriðum svo sem fyrir dansverk, kvikmyndir og sjónvarp, sirkus, fjölleikasýningar og annað. Stjórnendur bardagaatriða hafa gjarnan bakgrunn í íþróttum á borð við skylmingar, skotíþróttir eða hnefaleika eða bardagalistir á borð við júdó, kínverskt kung fu eða karate, eða herþjálfun.
ISCO 3435
Stjórnendur ljósaborða stjórna lýsingu á sviðslistum sem byggir á listrænni eða sköpunarhugmynd í samstarfi við sviðslistamenn. Vinna þeirra er fyrir áhrifum af og hefur áhrif á niðurstöður annarra sýninga. Því er unnið náið með hönnuðum, stjórnendum og listflytjendum. Stjórnendur ljósaborða undirbúa og stjórna uppsetningu, stjórna tæknifólki, forrita búnaðinn og starfrækja lýsingarkerfið. Þeir kunna að bera ábyrgð á hefðbundnum eða sjálfvirkum ljósabúnaði og, í sumum tilvikum að stjórna myndbandssýningum. Vinna þeirra byggir á áætlunum, leiðbeiningum og öðrum skjölum.
ISCO 3435
Stjórnendur ljóskastara stjórnar ljóskastara sem byggir á listrænni eða sköpunarhugmynd, í samstarfi við sviðslistafólk. Ljóskastarar eru sérstakur ljósabúnaður sem er hannaður til að fylgja sviðslistafólki eða hreyfingum á sviði. Hreyfing, stærð, breidd geisla og litum er stjórnað handvirkt. Þess vegna vinna þeir náið með stjórnendum ljósaborða og sviðslistamönnum. Vinna þeirra er grundvölluð á leiðbeiningum og öðrum skjölum. Vinna þeirra getur falið í sér að vinna í mikilli hæð, á brúm eða yfir áhorfendahópi.
ISCO 3435
Stjórnendur sjálfvirks flugkerfis í leikhúsi stjórna hreyfingum sviðsmyndar og annarra þátta á sýningu byggt að listrænni eða skapandi sýn í samstarfi við listflytjendur. Vinna þeirra er fyrir áhrifum af og hefur áhrif á niðurstöður annarra sýninga. Því er unnið náið með hönnuðum, stjórnendum og listflytjendum. Stjórnendur sjálfvirkra flugkerfa undirbúa og hafa umsjón með uppsetningu, forrita búnað og starfrækja sjálfvirk flugkerfi, eða kerfi fyrir lárétta hreyfingu eða talíukerfi. Vinna þeirra byggist á áætlunum, fyrirmælum og útreikningum. Þegar verið er að hagræða í þungum hlutum nálægt eða ofan við listflytjendur og áhorfendur hefur það í för með sér að starfið er áhættusamt.
ISCO 3435
Sviðstæknar stjórna ólíkum þáttum sviðslista sem byggist á listrænni eða sköpunarhugmynd í samstarfi við sviðslistamenn. Þeir undirbúa og sjá um uppsetningu, forrita búnað og starfrækja ýmis kerfi. Tæknimenn sjá um lýsingu, hljóð, myndbönd, sviðsmyndir og/eða flugkerfi. Vinna þeirra byggist á áætlunum, fyrirmælum og útreikningum. Þeir geta starfað á litlum sviðum, leikhúsum og annarri tegund listrænnar framleiðslu.
ISCO 3435
Sviðstæknimenn meðhöndla sviðsmyndir og aðra þætti sviðslista, byggt á listrænu- eða sköpunarhugverki í samstarfi við sviðslistamenn. Vinna þeirra er fyrir áhrifum af og hefur áhrif á niðurstöður annarra sýninga. Þess vegna vinna sviðstæknimenn náið með hönnuðum, rekstraraðilum og sviðslistafólki. Sviðstæknimenn undirbúa og koma tækjabúnaði fyrir, skipta um og starfrækja handvirkan flugbúnað. . Vinna þeirra byggist á áætlunum, fyrirmælum og útreikningum.
ISCO 3435
Sýningarstjóri samræmir og stjórnar undirbúningi og framkvæmd sýningar til að tryggja að sjónræn uppsetning og leikur á sviði sé í samræmi við listræna sýn leikstjóra og listræna teymisins. Hann greinir þarfir, fylgist með tækni- og listrænu ferli á meðan á æfingum og sýningum stendur samkvæmt listrænum þáttum, eiginleikum sviðsins og tæknilegum, hagrænum, mannlegum og öryggisþáttum.
ISCO 3435
Tæknimenn í leikhúsi sinna öllum tæknilegum verkefnum til að styðja við listflutning. Þeir byggja upp og taka niður svið og innréttingar, setja upp og starfrækja hljóð, ljós, upptökur og myndbandsbúnað og skipuleggja flutninga á innréttingum og tæknibúnað fyrir sviðslistir og tilfærslu.
ISCO 3435
Stjórnendur tökustaða eru ábyrgir fyrir því að finna tökustaði utan myndvers og þeir þurfa að tryggja að öll nauðsynleg aðföng séu til staðar. Þeir semja um notkun tökustaðar og stjórna og viðhalda honum á meðan á tökum stendur. Stjórnendur tökustaða stjórna öryggi tökuliðs á staðnum.
ISCO 3435
Umsjónarmaður búninga hjálpar til við að klæða leikara og aukaleikara. Þeir ganga úr skugga um að allt sé eins og búningahönnuðurinn sá fyrir sér og tryggja að allt gangi vel í útliti listflytjenda. Umsjónarmenn búninga viðhalda og gera við þessa búninga. Þeir geyma þá á öruggan og réttan hátt eftir kvikmyndatökur.
ISCO 3435
Umsjónarmenn smíðaverkstæðis samræma sérstök verkstæði sem hanna, byggja, undirbúa, aðlaga og viðhalda hlutum sem notaðir eru á sviði. Vinna þeirra byggist á listrænni sýn, áætlunum og skráningu yfir heildarframleiðslu. Þeir vinna með hönnuðum sem taka þátt í framleiðslunni, framleiðsluteyminu og öðrum þjónustuaðilum fyrirtækisins.
ISCO 3435
Áhættuleikarar leika atriði sem eru of hættuleg fyrir leikara, sem þeir ráða ekki við líkamlega eða búa ekki yfir hæfileikum til að leika á borð við bardagasenur, stökkva af byggingum, dansa og slík atriði.
ESCO flokkar hæfni sem dæmigerða eða viðbótar fyrir starfsheiti. Einstakir starfsmenn hafa yfirleitt hluta af listanum — sniðinn að sérhæfingu og vinnuveitanda.
Dæmigerð (200)
Aðgangur um API