aðstoðarhljóðmaður
ISCO 3521
Bómustjórar setja upp og starfrækja bómuljóðnema, annað hvort handvirkt, á armi eða á palli sem hreyfist. Þeir tryggja að allir hljóðnemar séu rétt staðsettir á setti og í bestri aðstöðu til að fanga samtölin. Bómustjórar eru einnig ábyrgir fyrir hljóðnemum á fötum leikaranna.
hljóðhönnuður
ISCO 3521
Hljóðhönnuðir skapa hljóðheim og hljóðbrellur í kvikmyndum, sjónvarpi eða annarri margmiðlunarframleiðslu. Þeir bera ábyrgð á allri tónlist og hljóði sem notuð eru í kvikmyndum, þáttaröðum eða tölvuleikjum. Hljóðhönnuðir nota búnað til að klippa til og hljóðblanda mynd og hljóð og tryggja að tónlist, hljóð og samtöl séu samstillt og passi við atriðin. Þeir vinna náði með myndbands- og kvikmyndaleikstjórum.
hljóðhönnuður
ISCO 3521
Hljóðhönnuðir þróa hljóðhönnunarsýn fyrir listsýningu og leiðbeina með framkvæmd hennar. Vinna þeirra byggist rannsóknum og listrænni sýn. Hönnun þeirra er undir áhrifum annarrar hönnunar og hefur áhrif á aðra og þarf að vera í samræmi við þá hönnun og almenna listræna sýn. Því starfa hönnuðir náið með leikstjórum, rekstraraðilum og listrænu teymi. Hljóðhönnuðir undirbúa hljóðbrot sem nota á í sýningu og getur falið í sér upptöku, að semja, meðhöndlun og klippingu. Á meðan á æfingum og sýningum stendur þjálfa þeir starfsmenn í að ná fram bestu tímasetningum og meðhöndlun. Hljóðhönnuðir þróa áætlanir, skrifa upp innkomur á svið og önnur skjöl til að styðja við stjórnendur og framleiðsluteymið. Stundum starfa hljóðhönnuðir einnig sem sjálfstæðir listamenn og búa til hljóðlist utan sviðslista.
hljóðmaður
ISCO 3521
Hljóðmenn stjórna hljóðvinnslu í sýningu, byggt á listrænni sýn eða skapandi sýn í samstarfi við sviðslistamenn. Vinna þeirra er undir áhrifum af og hefur áhrif á verk annarra. Því vinna þeir náið með hönnuðum, stjórnendum og sviðslistamönnum. Hljóðmenn undirbúa margmiðlunarefni, leiðbeina með uppsetningu, stjórna tækniteymi, hafa umsjón með búnaði og starfrækja hljóðkerfið. Vinna þeirra er grundvölluð á áætlunum, leiðbeiningum og öðrum skjölum.
hljóðtæknimaður
ISCO 3521
Hljóðtæknimenn færa tilbúnar upptökur yfir á það snið sem óskað er eftir, svo sem hljóðdiska, hljómplötur og yfir á stafrænt form. Þeir tryggja hljóðgæði á öllum sniðum.
hljóðupptökumaður
ISCO 3521
Hljóðupptökumenn starfrækja og viðhalda hljóðnemum og heyrnartólum í upptökuveri. Þeir starfrækja hljóðblöndunarborð. Hljóðupptökumenn stjórna öllum kröfum sem gerðar eru um hljóðvinnslu. Þeir ráðleggja söngvurum um raddbeitingu. Hljóðupptökumenn fullvinna upptökur.
kvikmyndagerðarmaður
ISCO 3521
Stjórnendur myndbanda stjórna myndböndum í sýningu, byggt á listrænni sýn eða skapandi sýn í samstarfi við sviðslistamenn. Vinna þeirra er undir áhrifum af og hefur áhrif á verk annarra. Því vinna þeir náið með hönnuðum, stjórnendum og sviðslistamönnum. Stjórnendur myndbanda undirbúa margmiðlunarefni, leiðbeina með uppsetningu, stjórna tækniteymi, hafa umsjón með búnaði og starfrækja myndbandakerfið. Vinna þeirra er grundvölluð á áætlunum, leiðbeiningum og öðrum skjölum.
kvikmyndatæknimaður
ISCO 3521
Myndatæknimenn setja upp, undirbúa, kanna og viðhalda búnaði til að veita bestu mögulegu myndgæði til stuðnings við sviðslistir. Þeir vinna með róturum við að afferma, koma fyrir og starfrækja afspilunarbúnað og -tæki.
mynd- og hljóðtæknimaður
ISCO 3521
Tæknimenn hljóð- og myndbúnaðar setja upp, starfrækja og viðhalda búnaði til upptöku og vinnslu mynda og hljóðs fyrir útvarps- og sjónvarpsútsendingar, á sviðsviðburðum og fyrir fjarskiptamerki.
sýningarstjóri í kvikmyndahúsi
ISCO 3521
Sýningarstjórar starfrækja og viðhalda sýningarvélum í kvikmyndahúsum. Þeir skoða kvikmyndafilmur áður en þeir setja þær í sýningarvélarnar. Sýningarstjórar ganga úr skugga um að allt gangi snurðulaust fyrir sig meðan á sýningu stendur. Þeir bera einnig ábyrgð á að kvikmyndir séu geymdar á viðeigandi hátt.
tæknimaður útsendingar
ISCO 3521
Tæknimenn í útsendingu setja upp, ræsa, viðhalda, hafa eftirlit með og gera við búnað sem notaður er fyrir útsendingu og móttöku sjónvarps- og útvarpsmerkis. Þeir tryggja að allt efni sé tiltækt á réttu sniði í nægum gæðum fyrir útsendingu fyrir tímaviðmið útsendingar. Tæknimenn í útsendingu viðhalda og gera við þennan búnað.
tæknimenn leigubúnaðar fyrir sýningar og viðburði
ISCO 3521
Tæknimenn leigubúnaðar fyrir sýningar og viðburði undirbúa, sinna viðhaldi á, afhenda, flytja, setja upp, forrita, stýra, taka á móti, yfirfara, hreinsa og geyma hljóð- og myndmiðlunarbúnað, og búnað fyrir listflutning og viðburði. Þeir vinna út frá áætlunum, leiðbeiningum og pöntunarseðlum.
tökumaður
ISCO 3521
Tökumenn setja upp og starfrækja stafrænar myndavélar til að taka upp kvikmyndir eða sjónvarpsþætti innanlands. Þeir vinna með myndbands- og kvikmyndaleikstjóra, leikstjóra ljósmyndana eða viðskiptavinum. Tökumenn ráðleggja um hvernig taka eigi upp við leikara, leikstjóra og aðra í tökuliðinu.