fræðslufulltrúi dýragarðs
ISCO 5113
Fræðslufulltrúar í dýragörðum kenna gestum um dýrin sem búa í dýragarðinum eða sædýrasafninu en einnig um aðrar tegundir og heimkynni þeirra. Þeir veita upplýsingar um stjórnun dýragarða, söfnun dýra þeirra og varðveislu náttúrulífs. Fræðslufulltrúar í dýragörðum geta verið þátttakendur í bæði formlegri og óformlegri menntun allt frá því að útbúa og setja upp upplýsingaskilti til fyrirlestra sem tengjast námskrá skóla eða háskóla. Fræðsluteymið getur verið ein manneskja eða stórt teymi. Það fer eftir stærð stofnunarinnar. Þar af leiðandi þarf færni fræðslufulltrúanna að vera mjög breið og er ólík á milli stofnana.
Fræðslufulltrúar í dýragörðum stuðla einnig að varðveislu. Þetta getur falið í sér vinnu innan dýragarðsins en einnig á vettvangi sem hluti af kynningarverkefnum dýragarðsins.
leiðsögumaður afþreyingarsvæðis
ISCO 5113
Leiðsögumenn garða aðstoða gesti, túlka menningarlega og náttúrulega arfleifð og veita upplýsingar og leiðbeina ferðamönnum í margvíslegum görðum á borð við skemmti-, náttúru- og náttúrulífsgarða.
leiðsögumaður ferðamanna
ISCO 5113
Leiðsögumenn ferðamanna eru einstaklingum og hópum til aðstoðar í ferðum eða skoðunarferðum eða á ferðamannastöðum, svo sem á söfnum, listamiðstöðvum, við minnismerki og á opinberum stöðum. Þeir hjálpa fólki að öðlast skilning á menningar- og náttúruminjum, hvort sem um að ræða hluti, staði eða svæði og veita upplýsingar og leiðsögn á tungumáli sem þeir hafa valið sér.
umhverfisfræðslufulltrúi
ISCO 5113
Umhverfisfræðslustjórar bera ábyrgð á kynningu á umhverfisvernd og þróun. Þeir heimsækja skóla og fyrirtæki, halda fyrirlestra, búa til kennsluefni og vefsíður, þeir leiðbeina í náttúrugöngum, veita viðeigandi kennslu og þjálfun og hjálpa við sjálfboðaliða- og verndarverkefni. Margir garðar ráða umhverfisfræðslufulltrúa til að veita leiðsögn á meðan á skólaheimsóknum stendur.