aðstoðarmaður hársnyrtis
ISCO 5141
Aðstoðarmenn hársnyrta þvo hár viðskiptavina, næra það og lita á snyrtistofum. Þeir setja sjampó, nudda hársvörðinn og skola hárið. Þeir bjóða einnig upp á meðferð í hársverði, litun, tónun og nudd fyrir viðskiptavini. Hárþvottafólk notar sérstök krem, sjampó, næringu og aðrar hárvörur í samræmi við óskir og þarfir viðskiptavina.
hársnyrtir
ISCO 5141
Hársnyrtar bjóða upp á fegrunarþjónustu á borð við hárskurð, litun, permanent og útlitshönnun á hári viðskiptavina. Þeir spyrja viðskiptavini um óskir þeirra til að veita einstaklingsbundna þjónustu. Hársnyrtar nota skæri, rakvélar og klippur. Þeir annast hár- og húðmeðferðir og þvo, næra og skola hárið.
hársnyrtir í sýningum
ISCO 5141
Hársnyrtar í sýningum aðstoða og styðja við listafólk á fyrir, á meðan og eftir sýningar til að tryggja að hárið sé í samræmi við sýn leikstjóra og listteymisins. Þeir viðhalda, athuga og lagfæra hárkollur og aðstoða þegar skipta þarf hratt um.
hárstílisti
ISCO 5141
Hárstílistar þvo, þurrka, klippa og útlitshanna hár söngvara og sviðslistamanna og ýmissa leikara á borð við sviðs-, kvikmynda- og sjónvarpsleikara, og leikara í tónlistarmyndböndum. Þeir vinna með listhönnuðum við að hanna útlit hvers einstaklings. Hárstílistar annast einnig hárkollur. Þeir eru vakandi fyrir því ef þörf er á að laga hár eða hárkollur listamanna á meðan á sýningum stendur.
rakari
ISCO 5141
Rakarar klippa, snyrta, stytta og útlitshanna hár karla. Þeir fjarlægja einnig skegg með rakstri á tilteknu svæði. Notuð er verkfæri á borð við skæri, klippur, rakvélar og greiður. Þeir geta boðið upp á viðbótarþjónustu á borð við hárþvott, útlitshönnun, litun og höfuðnudd.