samsetningarmaður framleiddra viðareininga
ISCO 7119
Samsetningarmenn framleiddra viðareininga setja saman viðareiningar til notkunar í byggingarframkvæmdum. EIningarnar geta samanstaðið af veggjum með gluggum og hurðum eða verið á stærð við heil herbergi. Samsetningarmennirnir setja saman stuðningsstrúktúr, einangrunarefni og -hlífar og festa þessa hluta saman til að búa til nothæfar einingar.
tjalduppsetningarmaður
ISCO 7119
Tjalduppsetningarmenn koma fyrir og taka niður tímabundin skjól, tjöld og fjölleikahústjöld með tilheyrandi gistiaðstöðu fyrir atburði og listflutning. Vinna þeirra byggist á leiðbeiningum, áætlunum og útreikningum. Þeir vinna aðallega utanhúss og geta fengið aðstoð frá heimafólki.
uppsetningarmaður byggingarvinnupalla
ISCO 7119
Uppsetningarmenn byggingarvinnupalla setja upp vinnupalla til að gera byggingarvinnu örugga í mögulegri hæð.
verkamaður við niðurrif mannvirkja
ISCO 7119
Verkamenn við niðurrif mannvirkja starfrækja búnað til niðurrifs bygginga. Þeir rífa byggingar á öruggan hátt og fjarlægja brak til að hægt sé að nota svæðið á nýjan hátt.
viðgerðarmaður hárra mannvirkja
ISCO 7119
Viðgerðarmenn hárra mannvirkja eru sérhæfðir í vinnu í mikilli hæð og gera við ytra byrði bygginga á öruggan hátt.