starfsmaður við málmsteypumót
ISCO 7211
Starfsmenn við málmsteypumót framleiða kjarna fyrir málmmót sem eru notuð til að fylla upp í rými sem á ekki að vera fyllt við málmsteypu. Þeir nota við, plast eða önnur efni til að búa til kjarnann. Þeir velja efni sem þola erfitt umhverfi málmsteypunnar.
starfsmaður við mótagerð
ISCO 7211
Starfsmenn við mótagerð búa til mót með handafli fyrir framleiðslu á málmvörum. Þeir blanda sandi og hersluefnum til að fá fram sérstaka blöndu. Síðan nota þeir mynstur og einn eða fleiri kjarna til að fá fram rétta lögun efnisins. Efnið er síðan látið þorna með það í huga að seinna verði það notað sem mót í framleiðslu á málmblöndum ýmist með eða án járnblöndu.
verkamaður málmsmiðju
ISCO 7211
Verkamenn við málmsmiðju framleiða afsteypur, þar á meðal rör, pípur, holar vörur og aðrar vörur sem eru unnar úr fyrstu stálsmíði. Þeir starfrækja handstýrðan búnað í málmsmiðjunni. Þeir annast flæði bráðins málms í mót, hvort sem um er að ræða járnblandaðan málm eða ekki. Þeir skapa réttar aðstæður til að fá fram mestu mögulegu gæði málms. Þeir fylgjast með flæði málma til að greina bilanir. Ef um bilun er að ræða tilkynna þeir það viðeigandi starfsfólki og taka þátt í að laga bilunina.
verkamaður við mótagerð
ISCO 7211
Verkamenn við mótagerð framleiða mót, þar á meðal rör, pípur, hol mót og aðrar vörur í stálframleiðslu með starfrækslu handstýrðs búnaðar í málmsmiðju. Þeir annast flæði bráðins málms í mót, hvort sem um er að ræða járnblandaðan málm eða ekki. Þeir skapa réttar aðstæður til að fá fram mestu mögulegu gæði málms. Þeir fylgjast með flæði málma til að greina bilanir. Ef um bilun er að ræða tilkynna þeir það viðeigandi starfsfólki og taka þátt í að laga bilunina.