leirkerasmiður við vöruframleiðslu
ISCO 7314
Leirkerasmiðir annast framleiðslu á leirpottum, steinvörum, leirvörum og postunlíni með höndum eða hjóli. Þeir setja mótaðan leir í brennsluofna, hita hann við háan hita í því skyni að fjarlægja allt vatn úr leirnum.
múrsteinagerðarmaður
ISCO 7314
Starfsmenn í múrsteinsgerð búa til sérstaka múrsteina, rör og aðrar hitaþolnar vörur og nota til þess handverkfæri. Þeir búa til mót samkvæmt forskriftum, hreinsa og smyrja þau, setja blönduna í og taka hana úr mótinu. Síðan láta þeir múrsteinana þorna í brennsluofni áður en þeir pússa og ljúka við fullunna vöru.
starfsmaður við leirmuna- og postulínsgerð
ISCO 7314
Starfsmenn við leirmuna- og postulínsafsteypu fylla mót með leir til að steypa leirmuni og postulíns vöru. Þeir hella umfram magni úr mótinu þegar þörf krefur, tappa mót, fjarlægja steypuna úr mótinu, slétta steypuflötinn til að fjarlægja merki og setja steypuna á borð til að þorna.