handverksmaður með leðurvörur
ISCO 7318
Handverksmenn með leðurvörur framleiða leðurvörur eða hluta þeirra með handafli samkvæmt forskrift viðskiptavinar eða eigin hönnun. Þeir annast viðgerðir á leðurvörum á borð við skó, töskur og hanska.
ÍSTARF21 · Stig 4 · starfaflokkur
Störf við vefnað og leðuriðn fela í sér að fara eftir hefðbundnum aðferðum og nota mynstur og snið til að framleiða prjónaðan, útsaumaðan, ofinn og annars konar fatnað og vörur, hefðbundinn skófatnað, handtöskur, belti og aðra aukahluti.
ISCO 7318
Handverksmenn með leðurvörur framleiða leðurvörur eða hluta þeirra með handafli samkvæmt forskrift viðskiptavinar eða eigin hönnun. Þeir annast viðgerðir á leðurvörum á borð við skó, töskur og hanska.
ISCO 7318
Prjónarar búa til textílvörur eða efni með því að prjóna úr garni. Þeir nota hefðbundna tækni til að búa til samtengdar lykkjur úr garni sem mynda samfelldan efnisbút. Prjónarar nota fjölbreytta tækni, prjóna og garnefni til að búa til fjölbreyttar prjónavörur.
ISCO 7318
Netagerðarmenn búa til og setja saman fiskinetabúnað og annast viðgerðir og viðhald eins og leiðbeint er á teikningum eða með hefðbundnum aðferðum.
ISCO 7318
Handverksmenn í teppagerð nota handverkstækni til að búa til textílefni á gólf. Þeir búa til teppi og mottur úr ull eða öðrum textílefnum með hefðbundnum handverksaðferðum. Þeir geta notað fjölbreyttar aðferðir á borð við vefnað, hnýtingar eða brúskun til að búa til ólíkar tegundir teppa.
ISCO 7318
Teppavefarar nota vélbúnað til að gera textílefni á gólf. Þeir búa til teppi og mottur úr ull eða gerviefnum og nota til þess sérhæfðan búnað. Teppavefarar geta notað fjölbreyttar aðferðir, svo sem vefnað, hnýtingar eða brúskun til að búa til ólíkar gerðir teppa.
ISCO 7318
Vefarar sjá um vefnað í hefðbundnum handknúnum vefstólum (allt frá silki- til teppavefnaðar, allt frá flötum vefstólum til Jacquard-vefstóla). Þeir hafa eftirlit með ástandi véla og gæðum vefnaðarins, svo sem ofinna fataefna, vefnaðar til heimilisnota eða til nota á tæknilegu sviði. Þeir annast vinnu við vélbúnað sem breytir garni í efni á borð við ábreiður, teppi, handklæði og fataefni. Þeir gera við vefstólsbilanir sem vefarinn tilkynnir um og fylla út frágangsblöð fyrir tilbúnar vefnaðarvörur.
ESCO flokkar hæfni sem dæmigerða eða viðbótar fyrir starfsheiti. Einstakir starfsmenn hafa yfirleitt hluta af listanum — sniðinn að sérhæfingu og vinnuveitanda.
Dæmigerð (57)
Viðbótar (52)
Aðgangur um API