byggingarafvirki
ISCO 7411
Byggingarafvirkjar annast uppsetningu og viðhald á rafvírum og öðrum rafmagnsinnviðum í byggingum. Þeir tryggja að rafbúnaðurinn sé einangraður og ekki stafi eldhætta af honum. Þeir skilja núverandi aðstæður og gera úrbætur ef óskað er eftir því.
iðnaðarrafvirki
ISCO 7411
Iðnaðarrafvirkjar annast uppsetningu og viðhald á rafmagnsvírum og öðrum rafmagnsinnviðum í stórum iðnaðar- og atvinnubyggingum. Þeir annast skoðanir og gera við skemmda hluta rafkerfa til að tryggja skilvirkni.
rafvirki
ISCO 7411
Rafvirkjar koma fyrir og laga rafkerfi og vírakerfi. Þeir annast einnig uppsetningu og viðhald á rafbúnaði og vélum. Þetta verk getur farið fram innan- og utanhúss, í næstum öllum aðstæðum.
rafvirki í heimahúsum
ISCO 7411
Rafvirkjar í heimahúsum annast uppsetningu og viðhald á rafmagnsinnviðum og búsáhöldum á heimilum og öðrum íbúðabyggingum. Þeir annast skoðanir og viðgerðir á skemmdum hlutum til að tryggja skilvirkni.
tæknimaður rafmælitækja
ISCO 7411
Tæknimenn rafmælitækja annast uppsetningu og viðhald á rafmælikerfum í byggingum eða annarri aðstöðu. Þeir setja upp búnaðinn í samræmi við reglugerðir og laga bilanir og önnur vandamál. Þeir prófa búnaðinn og veita ráðgjöf um notkun og umhirðu.
tæknimaður við uppsetningu sólarorkukerfa
ISCO 7411
Tæknimenn sem starfa við uppsetningu sólarorkukerfa annast uppsetningu og viðhald sólarorkukerfa. Þeir undirbúa festingar, oft á þökum, setja upp sólarsellur og tengja þær við rafkerfi, þar með talið straumbreyti til að tengja sólarorkukerfið við raflínur.
viðburðarafvirki
ISCO 7411
Viðburðarafvirkjar annast uppsetningu og niðurtöku á tímabundnum, öruggum rafkerfum til stuðnings viðburða. Þeir vinna á stöðum sem ekki eru með aðgang að orkudreifikerfinu sem og stöðum með tímabundinn orkuaðgang. Vinna þeirra byggist á leiðbeiningum, áætlunum og útreikningum. Þau vinna innandyra og utandyra. Þeir vinna náið með tækniliði og rekstraraðilum.