húsgagnasmiður sem sérhæfir sig í endurgerð fornhúsgagna
ISCO 7522
Húsgagnasmiðir sem sérhæfa sig í endurgerð fornhúsgagna greina efni og tækni til að meta ástand fornhúsgagna og til að greina og flokka þau samkvæmt lista- og menningarsögu. Þeir nota gömul eða nútímaverkfæri og tækni til að endursmíða hlutinn og veita viðskiptavinum ráðgjöf varðandi endurgerð, varðveislu og viðhald slíkra hluta.
húsgagnasmiður við endurgerð gamalla húsgagna
ISCO 7522
Húsgagnasmiðir við endurgerð og -hönnun gamalla húsgagna endursmíða og endurskapa fornhúsgögn. Þeir undirbúa teikningar og sniðmát vörunnar, búa til, koma fyrir og setja saman hluta og ljúka vinnslu hlutarins samkvæmt upprunalegum forskriftum.
líkanasmiður afþreyingarsvæða
ISCO 7522
Líkanasmiðir afþreyingarsvæða hanna og smíða líkön af afþreyingarsvæðum úr ýmsum efnum svo sem plasti, við, vaxi og málmum, mestmegnis með höndunum.
skápasmiður
ISCO 7522
Skápasmiðir smíða skápa eða önnur húsgögn með skurði, lögun og viðarhlutum. Þeir nota aðra tegund afl- og handverkfæra á borð við rennibekki, fræsara og sagir.
starfsmaður við lokafrágang húsgagna
ISCO 7522
Starfsmenn við lokafrágang húsgagna meðhöndla yfirborð viðarhúsgagna með hand- eða aflverkfærum til að pússa, hreinsa og slípa. Þeir nota fúavarnarefni á yfirborð viðarins með notkun ýmissar tækni á borð við burstun eða úðabyssu. Þeir velja og beita réttum aðferðum í skreytingar- og/eða viðarvarnartilgangi.
tunnusmiður
ISCO 7522
Tunnusmiðir smíða tunnur og skyldar vörur sem eru unnar úr viði svo sem viðarfötur. Þeir móta viðinn, koma járnhringum utan um hann og móta tunnurnar til að halda vörunni sem um þessar mundir eru aðallega áfengir gæðadrykkir.