bruggmeistari
ISCO 2145
Bruggmeistarar tryggja brugggæði fyrirliggjandi vara og búa til blöndur til að þróa nýjar vörur. Þeir hafa umsjón með öllu bruggferlinu hvað varðar fyrirliggjandi vörur og fylgja einum af mörgum bruggferlum. Hvað varðar nýjar vörur þá þróa þeir nýjar bruggaðferðir og vinnslutækni eða aðlaga þær sem fyrir eru til að setja fram mögulegar nýjar vörur.
efnaverkfræðingur
ISCO 2145
Efnaverkfræðingar hanna og þróa umfangsmikil efna- og eðlisræn framleiðsluferli og taka þátt í öllu iðnaðarferlinu sem þörf er á til að umbreyta hráefnum í vörur.
eplavínsmeistari
ISCO 2145
Eplavínsmeistarar sjá fyrir framleiðsluferli eplavíns. Þeir tryggja gæði bruggunar og fylgja einum af mörgum bruggunarferlum. Þeir breyta fyrirliggjandi formúlum og vinnsluaðferðum til að þróa nýjar eplavínsafurðir og drykkjarvöru byggðar á eplavíni.
gerviefnaverkfræðingur
ISCO 2145
Gerviefnaverkfræðingar þróa nýja gerviefnaferla eða betrumbæta þá sem fyrir eru. Þeir hanna og smíða mannvirki og vélar til framleiðslu á gerviefnum og rannsaka sýni af hráefnum til að tryggja gæði þeirra.
lyfjaverkfræðingur
ISCO 2145
Lyfjaverkfræðingar hanna og þróa tækni sem notuð er til rannsókna og framleiðslu á lyfjum, ráðleggja lyfjaframleiðsluverksmiðja að viðhalda tækninni og starfrækja hana og tryggja öryggi viðskiptavina og starfsmanna. Þeir geta einnig tekið þátt í skipulagningu og hönnun lyfjaframleiðsluverksmiðja og rannsóknarmiðstöðva.
lífefnaverkfræðingur
ISCO 2145
Verkfræðingar í lífefnafræði rannsaka svið lífvísinda til að reyna að gera nýjar uppgötvanir. Þeir umbreyta þessum niðurstöðum í efnalausnir sem geta bætt velferð samfélags, s.s. bóluefni, vefjaviðgerðir, ræktun nytjaplantna og umhverfisvæna tækni, svo sem hreinna eldsneyti úr náttúruauðlindum.
matvælatæknir
ISCO 2145
Matvælatæknar vinna að því að framleiða matvæli og skyldar vörur á grundvelli efna-, eðlis- og líffræðilegra meginreglna og tækni. Þeir hanna og skipuleggja uppsetningu eða búnað, hafa eftirlit með starfsfólki, hafa eftirlit með og bæta tækni í tengslum við matvæli í matvælaframleiðslu.
pappírstæknifræðingur
ISCO 2145
Pappírstæknifræðingar tryggja bestu framleiðsluferla í framleiðslu pappírs og tengdra vara. Þeir velja fyrsta og annars stigs hráefni og kanna gæði þeirra. Til viðbótar skulu þeir hámarka notkun á vélum og búnaði svo og íðefni sem notuð eru við pappírsgerð.
sérfræðingur í gúmmíi
ISCO 2145
Gúmmítæknifræðingar þróa efnasamsetningar til að bregðast við sérstökum þörfum og ná tilskildum eiginleikum í gúmmíi, út frá tæknilýsingum og eftirspurn eftir notkun. Þeir hafa þekkingu á eðlis- og efnafræðilegum eiginleikum hrágúmmís og ferlinu við að breyta því í markaðsvörur.
verkfræðingur við gasframleiðslu
ISCO 2145
Verkfræðingar við gasframleiðslu þróa aðferðir til að hámarka nám og framleiðslu á gasi fyrir orku og þjónustuveitur. Þeir hanna kerfi til framleiðslu á gasi, hafa eftirlit með framleiðsluaðgerðum og þróa úrbætur á kerfum sem fyrir eru.
verkfræðingur við hönnun gasdreifingarstöðva
ISCO 2145
Verkfræðingar við hönnun gasdreifingarstöðva hanna og smíða flutningskerfi fyrir jarðgas, sem tengir gasdreifingarkerfið við neytandann með hönnun lagna og aðalveitu. Þeir rannsaka aðferðir til að tryggja sjálfbærni, draga úr umhverfisáhrifum og hámarka kostnaðarhagkvæmni.
vínfræðingur
ISCO 2145
Vínsérfræðingar fylgjast með framleiðslu vínsins í heild sinni og hafa umsjón með þeim sem vinna í víngerðum. Þeir hafa umsjón með og samræma framleiðslu til að tryggja gæði vínsins og veita einnig ráðgjöf með því að ákvarða verðmæti og flokkun vína sem framleidd eru.