borverkfræðingur
ISCO 2146
Boraverkfræðingar hafa umsjón með borun í gas- og olíubrunnum. Þeir aðstoða við hönnun, prófun og myndun brunna og starfa á landi eða á borpöllum á hafi úti. Borverkfræðingar starfa með öðru fagfólki í námuvinnslu og fylgjast með framþróun og öryggi á starfsstað.
efnafræðilegur málmfræðingur
ISCO 2146
Efnafræðilegir málmfræðingar eiga þátt í að vinna við framleiðslu á málmum úr málmgrýti og öðru endurvinnanlega efni. Þeir rannsaka eiginleika málma, s.s. tæringu og þreytu.
jarðolíuverkfræðingur
ISCO 2146
Jarðolíuverkfræðingar leggja mat á gas- og olíuvinnslusvæði. Þeir hanna og þróa aðferðir til að draga olíu og gas úr jörðu. Þeir hámarka upptöku kolvatnsefnis með lágmarks kostnaði og leitast við að valda sem minnstum áhrifum á umhverfið.
matsmaður á málm og málmgrýti/málmprófari
ISCO 2146
Matsmenn á málm og málmgrýti greina góðmálma á borð við silfur og gull til að ákvarða verðmæti og eiginleika efnisþátta með efna- og eðlisfræðilegum aðferðum. Þeir aðskilja einnig eðalmálma eða aðra efnisþætti frá öðrum efnum.
málmfræðingur
ISCO 2146
Málmfræðingar sérhæfa sig í efnistöku og vinnslu málma, s.s. járns, stáls, sinks, kopars og áls. Þeir vinna að því að móta eða sameina hreina og blandaða málma (málmblöndur) í nýja lögun og eiginleika. Málmfræðingar meðhöndla efnistöku málmgrýtis og þróa notkun þeirra í málmvinnslutækni. Þeir geta starfað bæði í framleiðslu eða við vísindalegar rannsóknir um nothæfi málma.
málmvinnslufræðingur
ISCO 2146
Málmvinnslufræðingar rannsaka eiginleika málmgrýtis, þ.m.t. kopar-, nikkel- og járngrýti og afkastageta ýmissa málma og málmblanda.
námuverkfræðingur
ISCO 2146
Námuverkfræðingar greina hvaða aðferðir til efnistöku svo sem gröftur, borun og sprengingar, henta best til að draga út hráefni frá jörðu. Þeir þróa áætlanir áður en nýjar námur er opnaðar og meta hvort náman sé arðbær. Námuverkfræðingar stjórna daglegum rekstri náma, búa til og viðhalda framvinduskýrslur, hafa umsjón með starfsfólki, tryggja heilbrigði og öryggi og meta þau umhverfisáhrif sem náman hefur á umhverfið.
sprengjusérfræðingur
ISCO 2146
Sprengiefnatæknimenn hanna bormynstur og ákvarða magn sprengiefna sem þörf er á. Þeir skipuleggja og hafa umsjón með stýrðum sprengingum, gefa skýrslur og rannsaka sprengingar sem fara úrskeiðis. Þeir stjórna sprengjuhylkjum.
verkfræðingur heilsu- og öryggismála við námavinnslu
ISCO 2146
Verkfræðingar heilsu- og öryggismála við námavinnslu þróa og innleiða kerfi og ferla til að koma í veg fyrir meiðsli og veikindi starfsmanna, bæta vinnuskilyrði á námum, draga úr heilsu- og öryggisáhættu og koma í veg fyrir skemmdir á búnaði og eignum.
verkfræðingur á sviði fljótandi orkugjafa
ISCO 2146
Verkfræðingar á sviði fljótandi orkugjafa meta staði þar sem eldsneyti er numið. Þeir hanna og þróa aðferðir til efnistöku á fljótandi eldsneyti úr jörðu. Þetta er eldsneyti á borð við jarðolíur, jarðgas, fljótandi jarðolíugas, jarðolíugas sem er ekki jarðefnaeldsneyti, lífdísilolíu og alkóhól. Þeir hámarka upptöku kolvatnsefnis með lágmarks kostnaði og leitast við að valda sem minnstum áhrifum á umhverfið.
verkfræðingur í námuskipulagningu
ISCO 2146
Verkfræðingur í námuskiplagningu hanna framtíðar námugerð sem getur náð framleiðslu- og þróunarmarkmiðum að teknu tilliti til jarðfræðilegra eiginleika og uppbyggingar auðlindarinnar. Þeir undirbúa framleiðslu- og þróunaráætlanir og fylgjast með framvindu þeirra.
verkfræðingur í uppbyggingu náma
ISCO 2146
Verkfræðingar í þróun náma hanna og samhæfa þróun námavinnslu svo sem þverskurði, gröft, gangagerð, lyftingu, hreinsun og brottflutningi og endurbyggingu yfirbyggingar.
verkfræðingur í vinnslu steinefna
ISCO 2146
Verkfræðingar í vinnslu steinefna þróa og stjórna búnaði og tækni til að vinna með viðunandi hætti og endurbæta verðmæt steinefni úr málmgrýti eða óunnum jarðefnum.