handmenntakennari
ISCO 2320
Verknámskennarar í iðnaðarlist kenna nemendum á sérsviði sínu, iðnaðarlist sem er að mestu hagnýt í eðli sínu. Þeir annast bóklega kennslu í tengslum við verklega færni og aðferðir sem nemendur eiga í kjölfarið að ná góðum tökum á í störfum tengdum iðnaðarlist, t.d. þar sem unnið er með við og málm svo sem smíði eða plötumálmsmíði. Verknámskennarar í iðnaðarlist fylgjast með framþróun nemenda, aðstoða þá þegar þörf er á og meta þekkingu þeirra og frammistöðu í iðnaðarlist með verkefnum, prufum og prófum.
herþjálfunar- og fræðsluliðsforingi
ISCO 2320
Herþjálfunar- og fræðsluliðsforingjar þjálfa nýja herskólanemendur, kadetta, í kenningum og verklagi sem er nauðsynlegt til að þeir geti orðið hermenn eða herforingjar. Hluti af kröfum til leiðbeinenda er að þeir búi sjálfir yfir reynslu í faginu. Þeir undirbúa og setja fram fræðileg námskeið og námsefni varðandi lög, innlendar og alþjóðlegar reglugerðir, varnar- og árásarlíkön, heimsmálin o.s.frv. Þeir annast einnig líkamlega þjálfun kadettanna, kenna þeim umhirðu og notkun vopna og véla, fyrstu hjálp, sjálfsvörn og árásartækni, notkun hernaðarökutækja og láta þá ganga í gegnum erfiðar æfingar og líkamlega þjálfun. Herþjálfunar- og fræðsluliðsforingjar annast þjálfunaráætlanir með því að þróa og uppfæra námskrá og vettvangsþjálfun þegar þörf er á. Þeir aðstoða yfirmenn við undirbúning fyrir kynningu og fylgjast að jafnaði með framþróun kadettanna og meta frammistöðu þeirra með röð kenningarlegra og líkamlegra prófa. Þeir undirbúa skýrslur um frammistöðu og matsskýrslur fyrir hvern kadett fyrir sig.
leiðbeinandi slökkviliðsmanna
ISCO 2320
Slökkviliðsleiðbeinendur þjálfa nýja slökkviliðsnema í kenningum og starfsháttum sem nauðsynlegir eru til að verða slökkviliðsmaður. Þeir annast fræðilega fyrirlestra um akademíska þætti á borð við lög, grunnefnafræði, öryggisreglugerðir, áhættustjórnun, eldvarnir, álestur teikninga o.s.frv. Slökkviliðsleiðbeinendur veita einnig reynslu- og hagnýtar leiðbeiningar varðandi notkun aðstoðarbúnaðar og björgunartækja á borð við brunaslöngur, eldaxir, reykgrímur o.s.frv. en einnig erfiða líkamsþjálfun, öndunartækni, skyndihjálp, sjálfsvörn og starfrækslu ökutækja. Þeir undirbúa einnig og þróa kennsluáætlanir og nýjar þjálfunaráætlanir sem nýjar, opinberar reglugerðir og viðfangsefni krefjast. Leiðbeinendur fylgjast með framþróun nemenda, meta þá hvert í sínu lagi og undirbúa skýrslur um frammistöðumat.
leiðbeinandi í flugumferðarstjórn
ISCO 2320
Leiðbeinendur í flugumferðarstjórn þjálfa fólk í öllum málum varðandi stjórnun flugumferðar, svo sem stjórnun flugumferðar og samskipti til leiðsagnar á flugvöllum. Þeir kenna allar fyrirskipanir sem flugumferðarstjórn gefur út í þeim tilgangi að miðla tilfinningu um öryggi og skjótt flæði flugumferðar.
lögregluþjálfari
ISCO 2320
Lögregluþjálfarar þjálfa nýja lögreglunema í starfsþjálfun og gamalreynda lögregluþjóna í kenningum og starfsháttum sem nauðsynlegir eru til að verða lögregluþjónn. Þeir annast fræðilega fyrirlestra um fræðilega þætti svo sem lög, reglugerðir stjórnvalda, samskipti við samfélög og mannlegan fjölbreytileika. Kennarar í lögregluskóla veita einnig reynslutengdar, hagnýtar leiðbeiningar varðandi líkamsþjálfun, skotvopnameðferð, fyrstu hjálp, sjálfsvörn og starfrækslu ökutækja. Þeir undirbúa og þróa einnig kennsluáætlanir og nýjar þjálfunaráætlanir þegar ný lög eða viðfangsefni sem tengjast lögreglumálum koma upp. Leiðbeinendur fylgjast með framþróun námsmanna, meta þau hvert í sínu lagi og undirbúa skýrslur um frammistöðumat.
siglingarkennari
ISCO 2320
Siglingakennarar kenna öllum þeim sem starfa við að stjórna skipi eða báti svo sem skipstjórum á herskipum eða á venjulegum skipum. Þeir kenna hvernig á að starfrækja vatnabáta eða hafskip samkvæmt reglugerðum. Þeir kenna nemendum sínum kenningar og tækni um hvernig eigi að stjórna, stýra og leiðarsegja og hvernig viðhalda eigi bátnum eða skipinu. Þá fylgist hann með og metur frammistöðu nemenda. Þeir leggja einnig áherslu á viðfangsefni sem tengjast ekki stýringu skipa svo sem þjónustu við viðskiptavini (ef um er að ræða fólksflutninga) og reglur um öryggisráðstafanir.
verknámskennari
ISCO 2320
Verknámskennarar leiðbeina nemendum á sérsviði sínu sem er að mestu hagnýtt í eðli sínu. Þeir annast bóklega kennslu í tengslum við verklega færni og aðferðir sem nemendur eiga í kjölfarið að ná góðum tökum á, á því sérsviði sem þeir hafa valið og til að hjálpa til við þróun á viðhorfum og gildum á sviðinu. Verknámskennarar fylgjast með framþróun nemenda, aðstoða þá þegar þörf er á og meta þekkingu þeirra og frammistöðu í faginu með verkefnum, prufum og prófum.
verknámskennari í ferðamálafræðum
ISCO 2320
Verknámskennarar í ferðamálafræði kenna nemendum á sérsviði sínu, ferðamálafræði sem er að mestu hagnýt í eðli sínu. Þeir annast bóklega kennslu í tengslum við verklega færni og aðferðir sem nemendur eiga í kjölfarið að ná góðum tökum á, í ferða- og ferðamannatengdum störfum. Verknámskennarar í ferðamálafræði fylgjast með framþróun nemenda, aðstoða þá þegar þörf er á og meta þekkingu þeirra og frammistöðu í ferðamálafræði með verkefnum, prufum og prófum.
verknámskennari í hjúkrun
ISCO 2320
Verknámskennarar í sjúkraliðun og ljósmóðurfræði kenna nemendum á sérsviði sínu, sjúkraliðun og ljósmóðurfræði sem er að mestu hagnýt í eðli sínu. Þeir annast bóklega kennslu í tengslum við verklega færni og aðferðir sem nemendur eiga í kjölfarið að ná góðum tökum á. Verknámskennarar í sjúkraliðun og ljósmóðurfræði fylgjast með framþróun nemenda, aðstoða þá þegar þörf er á og meta þekkingu þeirra og frammistöðu í sjúkraliðun og ljósmóðurfræði með verkefnum, prufum og prófum.
verknámskennari í hárgreiðslu
ISCO 2320
Verknámskennarar í hárgreiðslu kenna nemendum á sérsviði sínu, hárgreiðslu sem er að mestu hagnýt í eðli sínu. Þeir annast bóklega kennslu í tengslum við verklega færni og aðferðir sem nemendur eiga í kjölfarið að ná góðum tökum á. Verknámskennarar í hárgreiðslu fylgjast með framþróun nemenda, aðstoða þá þegar þörf er á og meta þekkingu þeirra og frammistöðu í hárgreiðslu með verkefnum, prufum og prófum.
verknámskennari í hótelfræðum
ISCO 2320
Verknámskennarar í þjónustufræðum kenna nemendum á sérsviði sínu, þjónustustörfum, sem eru að mestu hagnýt í eðli sínu. Þeir annast bóklega kennslu í tengslum við verklega færni og aðferðir sem nemendur eiga í kjölfarið að ná góðum tökum á, á sviði þjónustutendra starfa á borð við móttökustjóra á hóteli eða ráðsmann. Verknámskennarar í þjónustufræðum fylgjast með framþróun nemenda, aðstoða þá þegar þörf er á og meta þekkingu þeirra og frammistöðu í þjónustufræðum með verkefnum, prufum og prófum.
verknámskennari í hönnun og nytjalist
ISCO 2320
Verknámskennarar í hönnun og nytjalist kenna nemendum á sérsviði sínu, hönnun og nytjalist sem er að mestu hagnýt í eðli sínu. Þeir annast bóklega kennslu í tengslum við verklega færni og aðferðir sem nemendur eiga í kjölfarið að ná góðum tökum á, í störfum tengdum hönnun og nytjalist svo sem grafíska hönnun eða innanhússarkitektúr. Verknámskennarar í hönnun og nytjalist fylgjast með framþróun nemenda, aðstoða þá þegar þörf er á og meta þekkingu þeirra og frammistöðu í hönnun og nytjalist með verkefnum, prufum og prófum.
verknámskennari í landbúnaðar- og sjávarútvegsfræðum
ISCO 2320
Verknámskennarar í landbúnaðar-, skóg- og sjávarútvegsfræðum kenna nemendum á sérsviði sínu, landbúnaðar-, skóg- og sjávarútvegsfræðum sem er að mestu hagnýt í eðli sínu. Þeir annast bóklega kennslu í tengslum við verklega færni og aðferðir sem nemendur eiga í kjölfarið að ná góðum tökum á. Verknámskennarar í landbúnaðar-, skóg- og sjávarútvegsfræðum fylgjast með framþróun nemenda, aðstoða þá þegar þörf er á og meta þekkingu þeirra og frammistöðu í landbúnaðar-, skóg- og sjávarútvegsfræðum með verkefnum, prufum og prófum.
verknámskennari í læknarannsóknum
ISCO 2320
Verknámskennarar í læknisfræðilegri rannsóknartækni kenna nemendum á sérsviði sínu, læknisfræðilegri rannsóknartækni sem er að mestu hagnýt í eðli sínu. Þeir annast bóklega kennslu í tengslum við verklega færni og aðferðir sem nemendur eiga í kjölfarið að ná góðum tökum á til starfa í rannsóknarstofum í læknisfræðilegri rannsóknartækni. Verknámskennarar í læknisfræðilegri rannsóknartæknifylgjast með framþróun nemenda, aðstoða þá þegar þörf er á og meta þekkingu þeirra og frammistöðu í læknisfræðilegri rannsóknartækni með verkefnum, prufum og prófum.
verknámskennari í rafeindatæknifræði
ISCO 2320
Verknámskennarar í rafeindatækni og sjálfvirkni kenna nemendum á sérsviði sínu, rafeindatækni og sjálfvirkni sem er að mestu hagnýt í eðli sínu. Þeir annast bóklega kennslu í tengslum við verklega færni og aðferðir sem nemendur eiga í kjölfarið að ná góðum tökum á í rafeindatækni- og sjálfvirknitengdum störfum á borð við rafvirkjun eða tæknimenn sem starfa við sjálfvirkniframleiðsluferli. Verknámskennarar í rafeindatækni og sjálfvirkni fylgjast með framþróun nemenda, aðstoða þá þegar þörf er á og meta þekkingu þeirra og frammistöðu í rafeindatækni og sjálfvirkni með verkefnum, prufum og prófum.
verknámskennari í rafmagns- og orkufræði
ISCO 2320
Verknámskennarar í rafmagns- og orkufræði kenna nemendum á sérsviði sínu, rafmagns- og orkufræði sem er að mestu hagnýt í eðli sínu. Þeir annast bóklega kennslu í tengslum við verklega færni og aðferðir sem nemendur eiga í kjölfarið að ná góðum tökum á. Verknámskennarar í rafmagns- og orkufræði fylgjast með framþróun nemenda, aðstoða þá þegar þörf er á og meta þekkingu þeirra og frammistöðu í rafmagns- og orkufræði með verkefnum, prufum og prófum.
verknámskennari í rekstrarhagfræði
ISCO 2320
Kennarar í rekstrarhagfræði kenna nemendum á sínu fagsviði, rekstrarhagfræði, sem er að mestu hagnýt í eðli sínu. Þeir annast bóklega kennslu í þágu verklegrar færni og aðferða sem nemendur þurfa í kjölfarið að tileinka sér til að sinna rekstrarhagfræðitengdum störfum á borð við endurskoðun eða bankastörf. Kennarar í rekstrarhagfræði fylgjast með framförum nemenda, aðstoða þá þegar þörf er á og meta þekkingu þeirra og frammistöðu í rekstrarhagfræði með verkefnum, skyndiprófum og prófum.
verknámskennari í samgöngutæknifræði
ISCO 2320
Verknámskennarar í samgöngutæknifræði kenna nemendum á sérsviði sínu, samgöngutæknifræði sem er að mestu hagnýt í eðli sínu. Þeir annast bóklega kennslu í tengslum við verklega færni og aðferðir sem nemendur eiga í kjölfarið að ná góðum tökum á í samgöngutæknifræðitengdum störfum svo sem bílabremsutæknir. Verknámskennarar í samgöngutæknifræði fylgjast með framþróun nemenda, aðstoða þá þegar þörf er á og meta þekkingu þeirra og frammistöðu í læknisfræðilegri rannsóknartækni með verkefnum, prufum og prófum.
verknámskennari í snyrtifræði
ISCO 2320
Verknámskennarar í i snyrtifræðum kenna nemendum á sérsviði sínu, snyrtifræði sem er að mestu hagnýt í eðli sínu. Þeir annast bóklega kennslu í tengslum við verklega færni og aðferðir sem nemendur eiga í kjölfarið að ná góðum tökum á, á sviði snyrtitengdra starfa svo sem handsnyrtingu eða förðunar- og hárhönnun. Verknámskennarar í snyrtifræðum fylgjast með framþróun nemenda, aðstoða þá þegar þörf er á og meta þekkingu þeirra og frammistöðu í snyrtifræðum með verkefnum, prufum og prófum.
verknámskennari í veitingasölu
ISCO 2320
Verknámskennarar í veitingasölu kenna nemendum á sérsviði sínu, veitingasölu sem er að mestu hagnýt í eðli sínu. Þeir annast bóklega kennslu í tengslum við verklega færni og aðferðir sem nemendur eiga í kjölfarið að ná góðum tökum á. Verknámskennarar í veitingasölu fylgjast með framþróun nemenda, aðstoða þá þegar þörf er á og meta þekkingu þeirra og frammistöðu í veitingasölu með verkefnum, prufum og prófum.
verknámskennari í viðskipta- og markaðsfræði
ISCO 2320
Verknámskennarar í viðskipta- og markaðsfræði kenna nemendum á sérsviði sínu, viðskipta- og markaðsfræði sem er að mestu hagnýt í eðli sínu. Þeir annast bóklega kennslu í tengslum við verklega færni og aðferðir sem nemendur eiga í kjölfarið að ná góðum tökum á, í störfum tengdum sölu og markaðsmálum. Verknámskennarar í viðskipta- og markaðsfræði fylgjast með framþróun nemenda, aðstoða þá þegar þörf er á og meta þekkingu þeirra og frammistöðu í viðskipta- og markaðsfræði með verkefnum, prufum og prófum.
verknámskennari í íþróttakennarafræðum
ISCO 2320
Verknámskennarar í íþróttakennarafræðum kenna nemendum á sérsviði sínu, íþróttakennarafræðum sem er að mestu hagnýt í eðli sínu. Þeir annast bóklega kennslu í tengslum við verklega færni og aðferðir sem nemendur eiga í kjölfarið að ná góðum tökum á í íþróttakennaratengdum störfum á borð við heilsusérfræði eða skipulagningu útivistar. Þeir hvetja nemendur innan hefðbundinna samfélagsramma fræða þeirra og kenna viðeigandi viðhorf og gildi. Verknámskennarar í íþróttakennarafræðum fylgjast með framþróun nemenda, aðstoða þá þegar þörf er á og meta þekkingu þeirra og frammistöðu í íþróttakennarafræðum með verkefnum, prufum og prófum.
áhafnaleiðbeinandi
ISCO 2320
Áhafnaleiðbeinendur kenna nemendum öll málefni sem varða starfrækslu í farþegarýmum loftfara. Þeir kenna, eftir því um hvers konar flugvél er að ræða þau störf sem unnin eru um borð, fyrir- og eftirathuganir, öryggisráðstafanir, þjónustubúnað og þjónustuferli gagnvart viðskiptavinum og formsatriði.
ökukennari fyrir atvinnubílstjóra
ISCO 2320
Ökukennarar fyrir atvinnubílstjóra kenna atvinnubílstjórum hvernig starfrækja eigi ökutæki þeirra í samræmi við reglur um akstur. Þeir kenna nemendum sínum kenningar og tækni um hvernig eigi að aka og viðhalda ökutækinu. Þá fylgist hann með og metur frammistöðu nemenda. Þeir leggja einnig áherslu á viðfangsefni sem tengjast ekki akstri bifreiða, svo sem þjónustu við viðskiptavini (ef um er að ræða fólksflutninga) og reglur um öryggisráðstafanir.
ökukennari fyrir lestarstjórnendur
ISCO 2320
Leiðbeinendur fyrir atvinnulestarstjórnendur kenna atvinnulestarstjórum framtíðarinnar, þeim sem munu aka lestum, sporvögnum, neðanjarðarlestum og rafstrætisvögnum hvernig starfrækja eigi ökutæki þeirra samkvæmt reglugerðum. Þeir kenna nemendum sínum kenningar og tækni um hvernig eigi að aka og viðhalda lestarökutækinu. Þá fylgist hann með og metur frammistöðu nemenda. Einnig er lögð áhersla á efni sem tengjast öðrum efnum, s.s. þjónustu við viðskiptamenn (ef um er að ræða flutning einstaklinga) og reglur um öryggi.