einkakennari
ISCO 2359
Einkakennarar veita einkakennslu til barna starfsfólks eða fullorðinna til viðbótar við menntakerfið. Þeir hjálpa nemendum að bæta þekkingu sína og hæfni á tilteknu viðfangsefni á eigin hraða. Einkakennarar kenna nemendum sínum námstækni og skipulag til að tryggja námsþróun þeirra og meta síðan framfarir nemenda meðan á kennslustundum stendur.
fangelsiskennari
ISCO 2359
Fangelsiskennarar fræða afbrotamenn, þar á meðal fanga, í félagslegri endurhæfingu og betrunarhegðun. Þeir aðstoða fanga við að afla sér færni sem gæti auðveldað enduraðlögun þeirra að samfélaginu og aukið möguleika þeirra til að leita að störfum eftir afplánun. Kennarar í fangelsum greina námsþarfir einstaklinganna, skipuleggja og undirbúa kennsluefni og kennslustundir og uppfæra námsbókhald sitt. Þeir tryggja einnig að vinnusvæðið og námsefnið sé öruggt og laust við hættu og að umsjón sé alltaf höfð með nemendum.
fræðsluhönnuður
ISCO 2359
Fræðsluhönnuðir þróa leiðbeinandi efni fyrir þjálfunarnámskeið með notkun margmiðlunartækni og hönnunarbúnaði. Þeir stefna að því að skapa reynslu sem gerir öflun þekkingar og færni skilvirkari, áhrifaríkari og meira spennandi.
hannar rafrænt nám
ISCO 2359
Fjarnámshönnuðir ákvarða markmið og leiðir til að nýta tækniaðferðir til fjarnáms innan stofnunar og koma upp innviðum sem styðja þessi markmið og leiðir. Þeir fara yfir það námskeiðaval sem fyrir er og ganga úr skugga um að afhendingargetan gegnum netið sé fullnægjandi og gefa jafnframt ráðleggingar um breytingar á námskrá til að aðlaga námið að netlægri afhendingu.
hönnuður á sviði rafræns náms
ISCO 2359
Hönnuðir á sviði rafræns náms hanna og þróa einfaldari tegund netnámsefnis svo sem heimildaefni, glærur, mat, skjávörp, viðtalsmyndbönd og hlaðvörp. Þeir skrifa og bjóða upp á rafrænt námsefni.
inntökustjóri í nám
ISCO 2359
Inntökustjórar stjórna umsóknarferli og aðgangi nemenda að (einka) skólum eða háskólum. Þeir meta mögulega framtíðarhæfni nemenda og samþykkja eða hafna umsóknum, byggt á reglum og óskum sem stjórn og stjórnsýsla skólans leggja fram. Þeir aðstoða samþykkta nemendur við að skrá sig í áfanga og námskeið sem þeir vilja sækja.
kennari í fullorðinsfræðslu
ISCO 2359
Kennarar í fullorðinsfræðslu skipuleggja og kenna áfanga sem hannaðir eru sérstaklega fyrir fullorðna námsmenn. Þeir bjóða upp á fjölbreytt námsefni, allt frá fræðasviðum á borð við stærðfræði og sögu til þjálfunar til persónulegs þroska, tækniþekkingu og hagnýt námskeið á borð við tungumál og upplýsingatækni. Þeir kenna og styðja fullorðna og leitast eftir að auka þekkingu þeirra og persónulega færni og starfsfærni þeirra og/eða til að ná fram frekari menntun og hæfni. Kennarar í fullorðinsfræðslu taka mið af fyrri þekkingu og vinnu og lífsreynslu námsmanna. Þeir einstaklingsmiða kennslu sína og fá nemendur til þátttöku í skipulagningu og framkvæmd náms síns. Kennarar í fullorðinsfræðslu hann viðeigandi verkefni og próf sem passa fyrir fullorðna nemendur þeirra.
matsmaður menntunar
ISCO 2359
Menntunarmatsmenn leggja mat á raunverulegt hæfi, færni og þekkingu umsækjanda miðað við tiltekið hæfisvottorð eða prófskírteini í samræmi við fyrirfram ákveðinn staðal eða verklagsreglur og kveða upp hlutlægan úrskurð um það hvort umsækjandinn uppfylli samsvarandi frammistöðuskilyrði.
námsleiðbeinandi
ISCO 2359
Námsleiðbeinendur veita nemendum með slakan námsárangur stuðning, bæði í kennslustund og utan hennar í þeim tilgangi að bæta námsárangur þeirra. Þeir aðstoða nemendur sem standa illa að vígi hvað varðar námsörðugleika, hegðunarvandamál og mætingavandamál og aðstoða líka afburðanemendur sem fá ekki næga áskorun. Þeir geta einnig starfað með fullorðnum nemendum í fullorðinsfræðslukerfinu. Námsleiðbeinendur þróa skipulag og verkáætlanir með nemendum til að skipuleggja nauðsynlegar leiðbeiningar og til að fylgjast með námsframvindu. Þeir hafa einnig samráð við kennara, fræðslusálfræðinga, félagsráðgjafa í skólanum og ef nauðsyn krefur foreldra í því skyni að bæta námsþróun.
námsráðgjafi
ISCO 2359
Námsráðgjafar veita nemendum við menntastofnun hagnýtan og tilfinningalegan stuðning, hvort sem er í hópum, í kennslustund eða á einstaklingsgrunni. Þeir starfa við skóla og eru aðgengilegir fyrir nemendur sem geta nálgast þá með ýmis málefni. Námsráðgjafar geta veitt ráðgjöf um persónuleg vandamál á borð við félagslega aðlögun og hegðunarvandamál og skólatengd efni á borð við að framfylgja námskrá á viðunandi hátt, að ræða um niðurstöður prófa og veita nemendum upplýsingar um frekari möguleika á menntun. Þeir geta starfað náið með félagsráðgjafa skólans og/eða skólasálfræðingi og vísar til annarrar stoðþjónustu ef þörf er á.
námsráðgjafi á háskólastigi
ISCO 2359
Námsráðgjafar í háskóla aðstoða nemendur á háskólastigi við að bera kennsl á og ná námsmarkmiðum sínum. Þeir veita námsmönnum ráðgjöf hvað varðar val þeirra á námsleiðum, ræða við þá um kröfur sem gerðar eru um gráður og aðstoða þá við að skipuleggja starfsferil. Námsráðgjafar í háskóla ræða einnig námsframmistöðu nemandans og vísbendingar og kemur með tillögur til úrbóta, þar á meðal ráðgjöf við námið. Þeir vinna einnig náið með öðru stjórnsýslustarfsfólki og prófessorum við háskólann og tryggja að þeir séu meðvitaðir um reglur háskólans og breytingar sem kunna að hafa orðið á námsleiðum eða kröfum.
stoðtækniráðgjafi
ISCO 2359
Stoðtækniráðgjafar vinna að því að bæta námsaðgengi og/eða efla sjálfstæði og þátttöku einstaklinga með fötlun. Þetta gera þeir með því að veita námsfólki og starfsfólki stuðning, til að mynda með matsaðgerðum, þjálfun og leiðsögn. Stoðtækniráðgjafar hafa góðan skilning á þörfum námsfólks og búa yfir breiðri tækniþekkingu, bæði í tengslum við nám sem og lífs- og starfsaðstæður. Hlutverk þeirra kallar á þekkingu á vél- og hugbúnaði á sviði stoðtækni, svo sem talgervlum, forsagnar-, talkennsla- og sjónverkfærum, svo og tækjum sem veita líkamlegt aðgengi.
stuðningsfulltrúi á háskólastigi
ISCO 2359
Stuðningsfulltrúar á háskólastigi veita nemendum aðstoð við námsvandamál og starfa sem aðaltengiliður þessara nemenda. Þeir tryggja að aukakennsla og námsáætlanir standi til boða fyrir nemendur sem hafa fáa talsmenn og kljást við persónuleg eða fræðileg vandamál. Þeir skipuleggja einnig margs konar félagslega starfsemi allt skólaárið.
þjálfari í framsögn
ISCO 2359
Framsagnarþjálfarar veita, oft í einkakennslu, leiðbeiningar til handa viðskiptavinum í tækni og kenningum um hvernig bæta má færni þeirra í opinberri framsögn. Þeir bera kennsl á styrkleika og veikleika hvers skjólstæðings og klæðskerasníða leiðbeiningar sínar til sérstakra þarfa þeirra sem getur verið að bæta raddbeitingu, framsögn, frásagnarhæfni og líkamstungumál. Með hliðsjón af bakgrunni skjólstæðings, hvort sem það er fyrirtæki, menntun eða annað, leiðbeina framsagnarþjálfarar einnig skjólstæðingum sínum eða nemendum í rökræðu, mælskulist og annarri samræðutækni.