aðstoðarskrifstofustjóri Alþingis
ISCO 2422
Aðstoðarmenn á þingi styðja við embættismenn og stjórnmálamenn á svæðisbundnum, innlendum og alþjóðlegum þingum og taka að sér skipulagsmál. Þeir endurskoða opinber skjöl og fylgja þeim verklagsreglum sem ákveðnar eru af viðkomandi þingi. Þeir aðstoða við samskipti við hagsmunaaðila og veita þann stuðning í skipulagsmálum sem krafist er við meðhöndlun opinberra ferla.
fulltrúi stjórnmálagreiningar
ISCO 2422
Fulltrúar stjórnmálagreiningar greina þróun erlendra stjórnmála og annara stefnumála, hafa eftirlit með hagsmunaárekstrum og ráðleggja í sáttaumleitunum, ásamt öðrum þróunaráætlunum. Þeir skrifa skýrslur til að tryggja samskipti við opinberar stofnanir og þróa stefnur og aðferðir við framkvæmd.
fulltrúi stjórnsýslu opinberra mála
ISCO 2422
Fulltrúar stjórnsýslu opinberra mála gegna stjórnsýsluskyldum í stofnunum á sviði opinberra mála og opinberra deilda. Þeir tryggja skjalavörslu, meðhöndla fyrirspurnir og miðla upplýsingum til almennings, annað hvort í eigin persónu, með tölvupósti eða símtali. Þeir styðja við yfirmenn og tryggja innra flæði upplýsinga.
fulltrúi viðskiptaþróunar
ISCO 2422
Fulltrúar viðskiptaþróunar þróa og innleiða viðskiptastefnur bæði innanlands og í tengslum við alþjóðlegan inn- og útflutning. Þeir greina innlenda og erlenda markaði til þess að efla og koma á viðskiptaþjónustu, og tryggja að viðskiptaferlið sé í samræmi við löggjöf og að fyrirtæki séu vernduð fyrir truflunum.
húsnæðismálafulltrúi
ISCO 2422
Húsnæðismálafulltrúar rannsaka, greina og þróa stefnur á sviði húsnæðismála, sem auðveldar fullnægjandi húsnæði fyrir alla á viðráðanlegu verði. Þeir innleiða þessar stefnur til að bæta húsnæðisaðstæður íbúanna með ráðstöfunum á borð við byggingu húsnæðis á viðráðanlegu verði, stuðning við fólk til fasteignakaupa og bætingu ástands núverandi húsnæðis. Húsnæðismálafulltrúar vinna náið með samstarfsaðilum, utanaðkomandi stofnunum eða öðrum hagsmunaaðilum, og uppfæra þá reglulega um stöðu mála.
innkaupasérfræðingur
ISCO 2422
Innkaupasérfræðingar búa yfir sérþekkingu á tilteknum mörkuðum og samningstegundum og miðla af ítarlegri þekkingu sinni á sérstökum flokkum vara, þjónustu eða vinnu. Þeir hjálpa innri og ytri viðskiptavinum til að auka fjárhagslega hagkvæmni sem og ánægju endanlegra notenda vegna ítarlegrar þekkingar sinnar á birgjum og framboði þeirra.
lagalegur stefnumótunarfulltrúi
ISCO 2422
Lagalegir stefnumótunarfulltrúar rannsaka, greina og þróa stefnur er tengjast lagalega geiranum og koma þeim stefnum til framkvæmda til að bæta gildandi reglugerðir utan um geirann. Þeir vinna náið með samstarfsaðilum, utanaðkomandi stofnunum eða öðrum hagsmunaaðilum og sjá þeim fyrir reglulegum uppfærslum.
leyniþjónustumaður
ISCO 2422
Leyniþjónustumenn þróa og framkvæma áætlanir til þess að safna upplýsingum og trúnaðargögnum. Þeir rannsaka boðleiðir sem útvega þeim nauðsynleg trúnaðargögn og hafa samband við fólk og taka viðtöl við fólk sem sem gæti veitt upplýsingar. Þeir skrifa skýrslur um niðurstöður sínar og framkvæma stjórnsýsluskyldur til að tryggja viðhald skráa.
mannúðarráðgjafi
ISCO 2422
Mannúðarráðgjafar tryggja áætlanir sem draga úr áhrifum mannúðarhættuástands á landsvísu og/eða á alþjóðlegum vettvangi. Þeir veita fagráðgjöf og stuðning í samstarfi við aðra samstarfsaðila.
stefnumótunarfulltrúi
ISCO 2422
Stefnumótunarfulltrúar rannsaka, greina og þróa stefnur innan mismunandi opinberra sviða, og móta og innleiða þessar stefnur til þess að bæta núverandi reglusetningu innan geirans. Þeir leggja mat á áhrif núverandi stefnu og tilkynna niðurstöður til ríkisstjórnar og almennings. Stefnumótunarfulltrúar starfa náið með samstarfsaðilum, utanaðkomandi stofnunum eða öðrum hagsmunaaðilum og veita þeim reglulegar uppfærslur um stöðu mála.
stefnumótunarfulltrúi menntunarmála
ISCO 2422
Stefnumótunarfulltrúar menntunarmála rannsaka, greina og þróa stefnur í menntunarmálum, og innleiða þessar stefnur til þess að bæta núverandi menntakerfi. Þeir leitast við að bæta alla þætti menntunar sem mun hafa áhrif á stofnanir eins og t.d. skóla, háskóla og verknámsskóla. Þeir vinna náið með samstarfsaðilum, utanaðkomandi stofnunum eða öðrum hagsmunaaðilum og sjá þeim fyrir reglulegum uppfærslum.
stefnumótunarfulltrúi tómstundamála
ISCO 2422
Stefnumótunarfulltrúar tómstundamála rannsaka, greina og þróa stefnur á sviði íþrótta og afþreyingar og innleiða þessar stefnur til þess að bæta íþrótta- og tómstundakerfið og til að bæta heilsu þjóðarinnar. Þeir leggja sig fram um að auka þátttöku íþrótta, styðja íþróttamenn, bæta frammistöðu íþróttafólks í keppnum bæði innanlands og á alþjóðavettvangi, bæta félagslega aðlögun og þróun í samfélaginu. Þeir vinna náið með samstarfsaðilum, utanaðkomandi stofnunum eða öðrum hagsmunaaðilum og sjá þeim fyrir reglulegum uppfærslum.
stefnumótunarfulltrúi í byggðaþróunarmálum
ISCO 2422
Stefnumótunarfulltrúar í byggðaþróunarmálum rannsaka, greina og þróa stefnur í svæðisþróun. Þeir koma stefnum í framkvæmd sem miða að því að draga úr misræmi milli svæða með því að hlúa að efnahagslegri starfsemi svæðis og skipulagsbreytingum eins og t.d. að styðja við mismunandi stig stjórnunar, þróun dreifbýlis og úrbætur á grunnvirkjum. Þeir vinna náið með samstarfsaðilum, utanaðkomandi stofnunum eða öðrum hagsmunaaðilum og sjá þeim fyrir reglulegum uppfærslum.
stefnumótunarfulltrúi í félagslegri þjónustu
ISCO 2422
Stefnumótunarfulltrúar í félagslegri þjónustu rannsaka, greina og þróa stefnur er varða félagslega þjónustu og innleiða þessar stefnur og þjónustu til þess að bæta aðstæður illa settra og berskjaldaðra einstaklinga innan samfélags, t.d. barna og aldraðra. Þeir starfa við stjórnun félagsþjónustu og eru í sambandi við stofnanir og aðra hagsmunaaðila og veita þeim reglulegar uppfærslur um stöðu mála.
stefnumótunarfulltrúi í landbúnaði
ISCO 2422
Stefnumótunarfulltrúar í landbúnaði greina og staðfesta málefni er varða landbúnaðarstefnu og þróa áætlanir til úrbóta og nýrrar stefnumótunar. Þeir skrifa skýrslur og kynningar til þess að veita upplýsingar svo hægt sé að eiga samskipti og fá stuðning fyrir stefnurnar frá opinberum starfsmönnum og almenningi. Þeir hafa einnig samskipti við fagmenn í landbúnaði, í þeim tilgangi að rannsaka og afla upplýsinga, og framkvæma skyldur sínar í stjórnsýslustörfum.
stefnumótunarfulltrúi í lýðheilsumálum
ISCO 2422
Stefnumótunarfulltrúar í lýðheilsumálum þróa og innleiða aðferðir til þess að bæta stefnu samfélagsins í heilbrigðismálum. Þeir gefa ríkisstjórnum ráðleggingar varðandi breytingar á stefnu, og greina vandamál núverandi stefnu í heilbrigðismálum.
stefnumótunarfulltrúi í menningarmálum
ISCO 2422
Stefnumótunarfulltrúar í menningarmálum þróa og hrinda í framkvæmd stefnum til þess að bæta og efla menningarstarfsemi og viðburði. Þeir hafa umsjón með auðlindum og eiga samskipti við almenning og fjölmiðla í þeim tilgangi að ná fram áhuga á menningarlegum verkefnum og leggja áherslu á mikilvægi þeirra í samfélaginu.
stefnumótunarfulltrúi í málefnum innflytjenda
ISCO 2422
Stefnumótunarfulltrúar í málefnum innflytjenda þróa leiðir til aðlögunar flóttamanna og hælisleitenda, og stefnur er varða flutninga fólks frá einni þjóð til annarrar. Markmið þeirra er að bæta alþjóðlega samvinnu og samskipti um málefni innflytjenda, sem og skilvirkni málsmeðferðar vegna innflutnings fólks og aðlögunar.
stefnumótunarfulltrúi í samkeppnismálum
ISCO 2422
Stefnumótunarfulltrúar í samkeppnismálum stjórna þróun svæðisbundinna og landsbundinna stefna og löggjafar, í þeim tilgangi að hafa stjórn á samkeppni og samkeppnishæfum starfsháttum, til að hvetja til opinna og gagnsærra viðskiptahátta og til að vernda neytendur og fyrirtæki.
stefnumótunarfulltrúi í umhverfismálum
ISCO 2422
Stefnumótunarfulltrúar í umhverfismálum rannsaka, greina, þróa og innleiða stefnur í tenglum við umhverfið. Þeir veita stofnunum, eins og viðskiptasamtökum, opinberum stofnunum og sérfræðingum á sviði byggðarþróunar, sérfræðiráðgjöf. Stefnumótunarfulltrúar í umhverfismálum vinna að því að draga úr áhrifum iðnaðar- viðskipta- og landbúnaðarstarfsemi á umhverfið.
stefnumótunarfulltrúi í vinnumarkaðsmálum
ISCO 2422
Stefnumótunarfulltrúar í vinnumarkaðsmálum rannsaka, greina og þróa stefnur á vinnumarkaði. Þeir innleiða stefnur allt frá fjármálastefnu til hagnýtrar stefnu, s.s. að bæta leitarbúnað við atvinnuleit, efla starfsþjálfun, veita hvatningu til sprotafyrirtækja og aðstoða við tekjuöflun. Stefnumótunarfulltrúar í vinnumarkaðsmálum starfa náið með samstarfsaðilum, utanaðkomandi stofnunum eða öðrum hagsmunaaðilum, og veita þeim reglulegar uppfærslur um stöðu mála.
stefnumótunarsérfræðingur í félagsþjónustu
ISCO 2422
Félagsþjónusturáðgjafar aðstoða við þróun á stefnu og verklagsreglum fyrir verkefni félagslegar þjónustu. Þeir rannsaka verkefni félagslegrar þjónustu og greina hvar þörf er á umbótum, auk þess að aðstoða við þróanir á nýjum verkefnum. Þeir uppfylla ráðgefandi hlutverk fyrir stofnanir félagslegrar þjónustu.
stefnumótunarsérfræðingur í heilbrigðisþjónustu
ISCO 2422
Ráðgjafar heilbrigðisþjónustu ráðleggja stofnunum heilbrigðisþjónustu um þróun áætlana til að bæta umönnun sjúklinga og öryggi. Þeir greina stefnur í heilbrigðisþjónustu, skilgreina málefni og aðstoða við að þróa aðferðir til umbóta.
stefnumótunarsérfræðingur í skattamálum
ISCO 2422
Stefnumótunarfulltrúar í ríkisskattamálum rannsaka, greina og þróa stefnur í tengslum við skattlagningu og fjárnotkun ríkisstjórnar í geirum tengdum allsherjarreglu, og hrinda þessum stefnum í framkvæmd til að bæta núgildandi reglur utan um geirann. Þeir vinna náið með samstarfsaðilum, utanaðkomandi stofnunum eða öðrum hagsmunaaðilum og sjá þeim fyrir reglulegum uppfærslum.
stefnumótunarsérfræðingur í utanríkismálum
ISCO 2422
Fulltrúar utanríkismála greina stefnur og aðgerðir utanríkismála, og rita skýrslur þar sem greiningum þeirra eru gerð skil á skýran og skiljanlegan hátt. Þeir eiga samskipti við aðila sem hagnast af niðurstöðum þeirra, og gegna ráðgefandi hlutverki við þróun eða framkvæmd skýrslugjafar um utanríkisstefnu. Fulltrúum utanríkismála er einnig heimilt að gegna stjórnunarskyldum innan deildarinnar, t.d. að aðstoða við vandamál er varða vegabréf og vegabréfsáritanir. Þeir stuðla að vinsamlegum og opnum samskiptum milli ríkisstjórna og stofnana mismunandi þjóða.
sérfræðingur í alþjóðasamskiptum
ISCO 2422
Alþjóðatengslafulltrúar tryggja uppbyggingu samstarfs á milli alþjóðlegra opinberra stofnana og ríkisstjórna. Þeir auðvelda samskipti á milli stofnunarinnar og erlendra stofnanna og þróa samstarfsáætlanir, til að stuðla að samvinnuþýðu samstarfi sem hagnast báðum málsaðilum.
sérfræðingur í atvinnumálum
ISCO 2422
Samhæfingarstjórar í atvinnumálum rannsaka og þróa verkefni og stefnur á sviði atvinnumála til að bæta ráðningarstaðla og draga úr vandamálum eins og atvinnuleysi. Þeir hafa eftirlit með eflingu stefnuáætlana og samræma framkvæmd.
sérfræðingur í opinberum innkaupum
ISCO 2422
Sérfræðingar í opinberum innkaupum gegna fullu starfi við að annast opinber innkaup; þeir vinna í innkaupateymum hjá stórri stofnun eða miðlægum innkaupaaðila á öllum stigum innkaupaferlisins. Þeir mæta þörfum með gerð kaupsamninga og skila stofnuninni og almenningi betri nýtingu fjármuna.
sérfræðingur í stefnumótun samfélagsþjónustu
ISCO 2422
Samfélagsþróunarfulltrúar þróa áætlanir tli að bæta lífsgæði í svæðisbundnum samfélögum. Þeir rannsaka og leggja mat á málefni og þarfir samfélagsins, stýra úrræðum og þróa framkvæmdaáætlanir. Þeir eiga samskipti við samfélagið í rannsóknarlegum tilgangi, og til að upplýsa samfélagið um þróunaráætlanir.
sérfræðingur í stefnumótun íþrótta- og tómstundastarfs
ISCO 2422
Samhæfingarstjórar á íþrótta- og tómstundasviði samhæfa íþrótta- og tómstundastarf og framkvæmd stefnumála. Þeir þróa nýjar áætlanir og miða að því að kynna og hrinda þeim í framkvæmd og tryggja jafnframt viðhald á íþrótta- og útivistaraðstöðu.
sérfræðingur í áætlunargerð í opinberri stjórnsýslu
ISCO 2422
Eftirlitsmenn áætlanagerðar ríkisstjórnar hafa eftirlit með þróun og framkvæmd opinberra áætlana og stefna, ásamt því að vinna úr tillögum á sviði áætlana og stefnumótunar, og framkvæma skoðanir vegna áætlanagerðar.
vöktunar- og matsmaður
ISCO 2422
Vöktunar- og matsmenn hafa með höndum hugmyndavinnu, hönnun og framkvæmd vöktunar og mats á verkefnum, áætlunum, stefnumótun, aðferðum, stofnunum eða ferlum meðan á viðkomandi áætlunarferli stendur, og sjá jafnframt um eftirfylgni. Þeir þróa vöktunar-, skoðunar- og matsaðferðir og verkfæri sem þarf til að safna gögnum og greina þau, og gefa skýrslur um niðurstöður með því að nota skipulega V&M-eftirlitsramma, -fræðigrunn, -nálganir og -aðferðir. Vöktunar- og matsmenn sjá þeim sem sjá um ákvarðanatöku fyrir upplýsingum með skýrslugjöf, fræðsluefni eða -starfsemi og þekkingarstjórnun. Þeir geta einnig beitt sér fyrir því að byggja upp getu með þjálfunar- og stuðningsaðgerðum innan stofnunarinnar/fyrirtækisins eða fyrir viðskiptavini og samstarfsaðila.