almannatengslafulltrúi
ISCO 2432
Almannatengslafulltrúar eru eru fulltrúar fyrirtækis eða stofnunar út á við fyrir hagsmunaaðila og almenning. Þeir nota samskiptaáætlanir til að stuðla að skilningi á starfsemi og ímynd viðskiptavina sinna á jákvæðan hátt.
almannatengslaráðgjafi
ISCO 2432
Almannatengslaráðgjafar starfa sem fulltrúar fyrir markmið viðskiptavinarins. Þeir reyna að sannfæra löggjafarstofnanir og stefnumótendur um að koma lögum eða reglugerðum til framkvæmda í samræmi við óskir viðskiptavinarins, og semja við aðila sem hafa mögulega annara hagsmuna að gæta. Þeir framkvæma greiningarlegar og rannsóknarlegar skyldur sínar í þeim tilgangi að tryggja að málstaður viðskiptavinarins sé ræddur á viðeigandi hátt og við viðeigandi aðila. Þeir hafa einnig samráð við viðskiptavini sína um málstaði þeirra og stefnur.
aðgerðastjóri
ISCO 2432
Aðgerðarfulltrúar kynna eða koma í veg fyrir félagslegar, pólitískar eða efnahagslegar breytingar með því að nota mismunandi aðferðir eins og t.d. sannfærandi rannsóknir, fjölmiðlaþrýsting eða opinberar herferðir.
fjáröflunarstjóri
ISCO 2432
Fjáröflunarstjórar bera ábyrgð á því að afla fjár fyrir hönd stofnana, oft ekki í hagnaðarskyni, eins og t.d. góðgerðarstofnanir. Þeir stýra enn fremur þeim auðlindum sem nýta fjáraflanir og þróa áætlanir sem þeir geta notað. Þeir framkvæma mismunandi verkefni til þess að afla fjár s.s. þróa samstarf fyrirtækja, stjórna póstherferðum, skipuleggja fjáraflanir, hafa samband við gefendur eða styrkjendur, og hafa umsjón með tekjum frá sjóðum, stofnunum eða öðrum lögboðnum aðilum.
kosningafulltrúi
ISCO 2432
Kosningafulltrúar starfa á því sviði að sannfæra almenning um að greiða atkvæði til þess stjórnmálaframbjóðenda sem þeir eru í forsvari fyrir. Þeir taka þátt í beinum samræðum við almenning á opinberum stöðum, og safna upplýsingum um skoðanir almennings, ásamt því að framkvæma aðgerðir sem tryggja að upplýsingar um herferðina nái sem víðast.
kosningaráðgjafi
ISCO 2432
Pólitískir kosningafulltrúar veita stuðning á meðan pólitískar herferðir standa yfir, ráðleggja frambjóðanda og starfsfólki framboðsstjórn varðandi framboðsaðferðir og samhæfingu starfsfólks í framboðsherferð, ásamt því að þróa markaðs- og rannsóknaráætlanir.
kosningastjóri
ISCO 2432
Kosningastjórar hafa umsjón með herferð pólitísks frambjóðanda og hafa umsjón með með starfsemi kosningar til þess að tryggja áreiðanleika. Þeir þróa áætlanir til þess að styðja við frambjóðendur og sannfæra almenning að kjósa þann frambjóðenda sem þeir eru í forsvari fyrir. Þeir framkvæma rannsóknir til að kanna hvaða ímynd og hugmyndir frambjóðandi hagnast mest á að kynna fyrir almenningi í því skyni að fá sem flest atkvæði.
opinber fulltrúi stjórnmálaflokks
ISCO 2432
Opinberir fulltrúi stjórnmálaflokks stýra stjórnsýsluverkefnum stjórnmálaflokks, s.s. fjárlagastjórnun, skráahald, ritun dagskrár o.s.frv., einnig tryggja samskipti við aðila á sviði stjórnsýslu við opinberar stofnanir, ásamt fréttamiðlum og fjölmiðlum.
ráðgjafi í þvermenningarlegum samskiptum
ISCO 2432
Ráðgjafar í þvermenningarlegum samskiptum sérhæfa sig í félagslegum samskiptum á milli mismunandi menningarhópa, ráðleggja stofnunum um alþjóðleg samskipti í þeim tilgangi að hámarka afköst þeirra, og auðvelda samvinnu og jákvæð samskipti á milli stofnana og einstaklinga frá mismunandi menningarheimum.
stafrænn leiðtogi
ISCO 2432
Samfélagsstjórar á netsviði veita og viðhalda gagnvirku umhverfi með nýtingu t.d. samfélagsmiðla, vettvanga og vefsvæða. Þeir viðhalda tengslum á milli mismunandi stafrænna samfélaga.
talsmaður
ISCO 2432
Talsmenn tala fyrir hönd fyrirtækja og stofnana. Þeir nota samskiptastefnur til þess að koma fram fyrir hönd viðskiptavina í gegnum opinberar tilkynningar og ráðstefnur. Þeir kynna viðskiptavini sína í jákvæðu ljósi og vinna að því að auka skilning á starfsemi þeirra og áhuga.