efnahagsráðgjafi
ISCO 2631
Efnahagsráðgjafar rannsaka efnahagslegar þróanir og ráðleggja um efnahagsleg vandamál. Þeir spá fyrir um stefnur og hegðun efnahagsmála, og veita ráðgjöf um fjármál, viðskipti, skattamál og önnur skyld mál. Þeir ráðleggja fyrirtækjum og stofnunum um aðferðir til að öðlast efnahagslegan hagnað.
hagfræðingur
ISCO 2631
Hagfræðingar framkvæma rannsóknir og þróa kenningar á sviði hagfræði, hvort sem um er að ræða þjóðhagslegar eða rekstarhagfræðilegar greiningar. Þeir skoða stefnur, greina tölfræðigögn, og vinna með töluleg efnahagsleg líkön upp að vissu marki til þess að geta ráðlagt fyrirtækjum, ríkisstjórnum og tengdum stofnunum. Þeir veita ráðgjöf um hagkvæmnileika vöru, stefnuspár, nýja markaði, skattastefnur og neytendahegðun.
rannsóknarmaður viðskiptahagfræði
ISCO 2631
Rannsóknarmenn viðskiptahagfræði stjórna rannsóknum um málefni er varða hagkerfi, fyrirtæki og stefnur. Þeir greina þjóðhagslegar og rekstrarhagfræðilegar stefnur og nota þessar upplýsingar til að greina stöðu atvinnugreinar eða tiltekinna fyrirtækja í hagkerfinu. Þeir veita ráðgjöf varðandi stefnumótandi áætlanagerð, vöruhagkvæmni, stefnuspár, nýja markaði, skattlagningarstefnu og neytendahegðun.
samræmingaramaður efnahagsþróunar
ISCO 2631
Samræmingarmenn efnahagsþróunar útlista og innleiða stefnur fyrir bætingu hagvöxts og stöðugleika innan samfélags, ríkisstjórna eða stofnana. Þeir rannsaka efnahagslegar stefnur og samræma samstarf á milli stofnana sem vinna við efnahagsþróun. Þeir greina mögulega efnahagslega áhættu og árekstra og þróa áætlanir til þess að leysa úr þeim. Samræmingarmenn efnahagsþróunar veita ráðgjöf að því er varðar efnahagslega sjálfbærni stofnana og hagvaxtar.
stefnumótunarsérfræðingur í efnahagsmálum
ISCO 2631
Stefnumótunarsérfræðingar í efnahagsmálum þróa efnahagsáætlanir. Þeir hafa eftirlit með þáttum er varða efnahagsmál, s.s. samkeppnishæfni, nýsköpun og viðskiptum. Stefnumótunarsérfræðingar í efnahagsmálum stuðla að þróun efnahagsstefnu, verkefna og áætlana. Þeir rannsaka, greina og meta vanda opinberra aðila og mæla með viðeigandi aðgerðum.
sérfræðingur skattastefnumála
ISCO 2631
Sérfræðingar skattastefnumála rannsaka og þróa skattlagningarstefnu og löggjöf til þess að bæta og þróa skattastefnur. Þeir veita opinberum aðilum ráðgjöf í málum er lúta að framkvæmd og fjármálastarfsemi, ásamt því að spá fyrir um fjárhagsleg áhrif breytinga á skattastefnum.