afbrotafræðingur
ISCO 2632
Afbrotafræðingar kanna aðstæður er varða menn eins og t.d. félagslega- og sálfræðilega þætti sem gætu leitt til þess að þeir framkvæmi afbrot. Þeir fylgjast með og greina mismunandi þætti, allt frá hegðunarástandi til félagslegs bakgrunns og umhverfi grunaðra til þess að geta ráðlagt stofnunum varðandi forvarnir gegn afbrotum.
atferlisfræðingur
ISCO 2632
Atferlisfræðingar rannsaka, fylgjast með og lýsa hegðun manna í samfélagi. Þeir draga ályktanir um ástæður hegðunar hjá manneskjum, fylgjast með mismunandi aðstæðum fyrir mismunandi atferli, og lýsa mismunandi persónuleikum. Þeir ráðleggja fyrirtækjum og opinberum stofnunum á þessu sviði. Þeir geta einnig greint atferli dýra.
fjölmiðlafræðingur
ISCO 2632
Fjölmiðlafræðingar rannsaka hlutverk og áhrif fjölmiðla á samfélagið. Þeir fylgjast með og skjalfesta notkun mismunandi fjölmiðla á borð við dagblöð, útvarp og sjónvarp og viðbrögð frá samfélaginu.
fornleifafræðingur
ISCO 2632
Fornleifafræðingar rannsaka og kanna siðmenningu og landnám fyrri tíða með því að safna og skoða fornleifar sem eftir eru. Þeir greina og draga ályktanir um vítt svið málefna, eins og valdakerfi, málvísindi, menningu og stjórnmál er byggja á skoðun hluta, mannvirkja, forngervinga, fornleifa og gervinga sem fólk hefur skilið eftir sig. Fornleifafræðingar nota mismunandi þverfaglegar aðferðir á borð við jarðlagaskipan, formgerðarflokkun, þrívíddargreiningu, stærðfræði og módelsmíði.
félagsfræðingur
ISCO 2632
Félagsfræðingar beina rannsóknum sínum að því að útskýra félagslega hegðun og hvernig fólk hefur skipulagt sig sem samfélag. Þeir rannsaka og útskýra hvernig samfélög hafa þróast með því að lýsa lagalegum, pólitískum og efnahagslegum kerfum og menningarlegum tjáningarformum.
landfræðingur
ISCO 2632
Landfræðingar eru fræðimenn sem kanna mannvistar- og eðlisræna landafræði. Með hliðsjón af sérhæfingu þeirra, þá rannsaka þeir pólitíska, efnahagslega og menningarlega hluta mannkyns innan mannvistarlandafræði. Þar að auki rannsaka þeir landmótanir, jarðveg, náttúruleg landamæri og vatnsflæði innan eðlisrænnar landafræði.
mannfræðingur
ISCO 2632
Mannfræðingar rannsaka alla þætti lífs er snerta mannfólk. Þeir kanna mismunandi siðmenningar sem uppi hafa verið á fyrri tímum og samsetningar þeirra. Þeir reyna að greina eðlisræna, samfélagslega, málvísindalega, pólitíska, efnahagslega, heimspekilega og menningarlega hluta mismunandi fólks. Markmið rannsókna þeirra er að skilja og lýsa fyrra mannkyni og leysa samfélagsleg vandamál. Þeir kanna mismunandi sjónarhorn, s.s. heimspekilega mannfræði.
rannsakandi á sviði félagsráðgjafar
ISCO 2632
Rannsóknarmenn í félagsráðgjöf annast rannsóknarverkefni sem miða að því að rannsaka og leggja fram skýrslur um félagsleg málefni. Fyrst framkvæma þeir rannsóknir með því að safna saman upplýsingum úr viðtölum, frá rýnihópum og spurningalistum, og í kjölfarið skipuleggja þeir og greina þær upplýsingar sem hafa safnast saman með því að nota hugbúnaðarkerfi. Þeir greina félagsleg vandamál og þarfir, og mismunandi aðferðir og tækni til að bregðast við þeim.
samskiptafræðingur
ISCO 2632
Samskiptafræðingar rannsaka mismunandi hliðar undirbúnings, söfnunar, hönnunar, skipulagningar, viðhalds, notkunar, endurmats og skipta á upplýsingum í gegnum munnleg eða óyrt samskipti. Þeir rannsaka samskipti á milli hópa, einstaklinga og gervigreindareinstaklinga (vélmenna).
sérfræðingur dauðsfalla
ISCO 2632
Sérfræðingar dauðsfalla rannsaka dauða og það að deyja á mismunandi vísindalegum sviðum eins og sálfræði, félagsfræði, lífeðlisfræði og mannfræði. Þeir stuðla að auknum þekkingarvexti hvað varðar dauða, á borð við þá sálfræðilegu sýn sem deyjandi og aðstandendur þeirra upplifa.