aðstoðarverkfræðingur
ISCO 3112
Aðstoðarverfræðingar tryggja umsýslu og eftirlit með tækniskjölum fyrir tiltekin verkefni og gæðamálum. Þeir aðstoða verkfræðinga við tilraunir þeirra, taka þátt í vettvangsheimsóknum og annast söfnun upplýsinga.
ÍSTARF21 · Stig 4 · starfaflokkur
mannvirkjagerð Tæknistörf í byggingarverkfræði og mannvirkjagerð fela í sér að sjá um, skipuleggja og sinna tæknilegum verkefnum við hönnun, byggingu, rekstur, viðhald og viðgerðir á byggingum og öðrum mannvirkjum á borð við vatnsveitu- og skólphreinsunarkerfi, brýr, vegi, stíflur og flugvelli.
ISCO 3112
Aðstoðarverfræðingar tryggja umsýslu og eftirlit með tækniskjölum fyrir tiltekin verkefni og gæðamálum. Þeir aðstoða verkfræðinga við tilraunir þeirra, taka þátt í vettvangsheimsóknum og annast söfnun upplýsinga.
ISCO 3112
Brunavarnasérfræðingar setja upp og viðhalda brunavarnabúnaði, s.s. slökkvitæki, brunaviðvörunarkerfi, eldskynjunarkerfi eða úðakerfi í húsakynnum til að tryggja að öryggisstaðlar séu í samræmi við kröfur og vernd gegn brunahættu. Þeir skoða búnaðinn til að tryggja virkni hans og framkvæma viðgerðir.
ISCO 3112
Byggingaeftirlitsmenn framkvæma skoðanir á byggingum til að ákvarða að uppfylltar séu kröfur varðandi mismunandi áherslur mats. Þeir fylgjast með og ákvarða hentugleika byggingar, gæða og þols og almennt eftirlit með því að farið sé að reglum.
ISCO 3112
Byggingarverkfræðisérfræðingar aðstoða við hönnun og framkvæmd á byggingarskipulagi og taka að sér skipulagsverkefni, til dæmis við skipulagningu og eftirlit, og við útboð og gerð reikninga varðandi byggingarvinnu. Þeir reikna einnig út efniskröfur og aðstoða við kaup og skipulagningu, og tryggja gæði byggingarefnanna. Byggingarverkfræðisérfræðingum er heimilt að annast tæknileg verkefni við mannvirkjagerð og mótun og ráðgjöf varðandi stefnuáætlanir um framkvæmdir á vegum, umferðarljós, fráveitukerfi og vatnsstjórnunarkerfi.
ISCO 3112
Eftirlitsmenn brúa skoða byggingu brúa hvað varðar brot á samskeytum, sprungur, ryð og aðrar bilanir. Þeir framkvæma einnig eða skipuleggja viðhald bygginganna.
ISCO 3112
Holræsaviðhaldssérfræðingar rannsaka holræsi og og leiðslukerfi. Þeir gera það með því að nota hreyfimyndavélar, þar sem upptökurnar segja þeim hvort þörf er á viðhaldi eða viðgerðum á þessum tegundum kerfa.
ISCO 3112
Eftirlitsmenn járnbrautargrunnvirkja bera ábyrgð á að kanna skilyrði járnbrauta. Þeir hafa eftirlit með því að farið sé eftir stöðlum varðandi heilbrigði og öryggi og skoða grunnvirkið til að finna skemmdir eða galla. Þeir greina og gefa skýrslu um niðurstöður sínar til að tryggja að járnbrautarskilyrði séu uppfyllt á öruggan hátt.
ISCO 3112
Eldvarnaeftirlitsmenn annast skoðanir á byggingum og eignum til þess að tryggja að þær fari að reglugerðum eldvarna og öryggis, og framfylgja þessum reglum á stöðum þar sem ekki er farið eftir þeim. Þeir sinna einnig menntunarstarfi, fræðslu til almennings á brunaöryggis- og forvarnaraðferðum, stefnum og viðbrögðum við hamförum.
ISCO 3112
Gæðaeftirlitsmenn mannvirkja hafa eftirlit með starfsemi á stærri byggingarsvæðum til að ganga úr skugga um að allt gerist í samræmi við staðla og kröfulýsingar. Þeir fylgjast grannt með hugsanlegum öryggisvandamálum og taka sýni af vörum til þess að kanna samræmi við staðla og kröfulýsingar.
ISCO 3112
Gæðastjórar mannvirkja ganga úr skugga um gæði vinnunnar fari eftir þeim stöðlum sem settir eru fram í samningnum, ásamt lágmarkskröfum um lagasetningu. Þeir setja fram verklagsreglur um eftirlit með gæðum, framkvæma skoðanir og gera tillögur að lausnum á annmörkum á gæðum.
ISCO 3112
Járnbrautarviðhaldssérfræðingar framkvæma venjubundnar skoðanir á járnbrautarteinum, raflínum, merkingarstöðvum og öðrum járnbrautargrunnvirkjum. Þeir eru einnig sendir út til að lagfæra galla fljótt, með öruggum hætti og hvenær sem er, dag eða nótt.
ISCO 3112
Landmælingasérfræðingar framkvæma verkefni við tæknilegar landmælingar. Þeir aðstoða landmælingamenn, arkitekta eða verkfræðinga við landmælingar á tæknilegum verkefnum á borð við kortlagningu á landi, hanna byggingarteikningar vinna með nákvæman mælingarbúnað.
ISCO 3112
Orkumatsmenn ákvarða orkunýtingu bygginga. Þeir búa til orkunýtnivottorð (e. Energy Performance Certificate, EPC), sem gefur til kynna hvernig áætluð orkunotkun eignar er. Þeir veita enn fremur ráðgjöf um hvernig eigi að bæta orkusparnað.
ISCO 3112
Orkuráðgjafar veita viðskiptavinum ráðgjöf um kosti og galla mismunandi orkugjafa. Þeir hjálpa viðskiptavinum að skilja orkugjaldskrár og reyna að draga úr orkunotkun þeirra og kolefnissporum með því að nota orkunýtnar vörur og aðferðir.
ISCO 3112
Orkusérfræðingar meta orkunotkun bygginga sem eru í eigu neytenda og fyrirtækja. Með því að greina fyrirliggjandi orkukerfi geta þeir mælt með kostnaðarhagkvæmum staðgöngukostum. Orkusérfræðingar benda til hagræðingar, gera greiningar á viðskiptum og taka þátt í þróun stefnu varðandi notkun hefðbundins eldsneytis, flutninga og annarra þátta er varða orkunotkun.
ISCO 3112
Orkuverndunarfulltrúar stuðla að varðveislu orku bæði á heimilum og fyrirtækjum. Þeir ráðleggja fólki um leiðir af því að draga úr orkunotkun þeirra með því að framfylgja umbótum í orkunýtni og innleiða stefnur um stjórnun eftirspurnar eftir orku.
ISCO 3112
Ryðtæknar fylgjast með áreiðanleika frá leiðslu og gera við ef þörf er á. Þeir tryggja að leiðslur séu réttilega tengdar og séu í samræmi við heilbrigðis- og öryggisreglugerðir. Ryðtæknar rannsaka bakskautsvarnarkerfi og staðsetningu tengingar leiðslna til að kanna ryð/tæringu. Þeir geta einnig aðstoðað við hönnun leiðslna, greiningu jarðvegs og ritunar skýrslu um tæknileg málefni.
ISCO 3112
Brunaöryggisprófunarmenn stjórna ýmsum prófunum á efnum á borð við byggingar-, flutnings- og vefnaðarefni, ásamt prófunum á brunavörnum og brunavarnarkerfum. Þeir mæla, m.a., tillit til eldþols og hegðunar efna við óvenjulegar aðstæður.
ISCO 3112
Vatnsveitutæknimenn aðstoða verkfræðinga við að þróa og koma á laggirnar vatnsveitu- og vatnshreinsikerfum. Þeir hafa eftirlit með aðgerðum til að tryggja að heilbrigðis- og öryggisreglur séu uppfylltar, kanna gæði vatns og tryggja innleiðingu löggjafar er tengist vatni.
ISCO 3112
Sérfræðingar vegaviðhalds kanna og hafa umsjón með vegum á afgirtum svæðum hvað varðar viðhald og viðgerðir. Þeir aðstoða við að leysa úr umferðarteppum á öruggan og greiðlegan hátt, og kanna að umferðarskilti, vegir og gangstéttir séu í góðu ásigkomulagi.
ISCO 3112
Landuppfyllingarstjórar samræma verkefni og starfsemi landfyllingar og landfyllingarstarfsfólks. Þeir rannsaka löggjöf er varðar meðhöndlun úrgangs og tryggja að rekstur landfyllingar sé í samræmi við hana, og beinar aðgerðir við förgun úrgangs.
ISCO 3112
Öryggiseftirlitsmenn mannvirkja fylgjast með byggingarvettvangi og samræmi þeirra við heilbrigðis- og öryggisreglur. Þeir framkvæma skoðanir, greina öryggishættu og gefa skýrslu um niðurstöður sínar.
ISCO 3112
Öryggisstjórar mannvirkja rannsaka, framfylgja og hafa eftirlit með heilbrigðis- og öryggisráðstöfunum á byggingarsvæðum. Þeir stjórna einnig slysum á vinnustöðum og grípa til aðgerða til að tryggja að stefna í öryggismálum sé innleidd með réttum hætti.
ISCO 3112
Matsmenn heimilisorku ráðleggja einstaklingum um orkugjafa sem ætlaðir eru heimilum. Þeir meta þarfir einstaklingsins og mæla með viðeigandi orkugjafa og birgja, og reyna að tryggja sölu á orku. Þeir veita einnig ráðgjöf um efnahagslegan og umhverfislegan ávinning af tegundum orku, og hanna orkuáætlanir sem eru í samræmi við reglugerðir, og tæknilegar kröfur og aðstæður heimilisins.
ESCO flokkar hæfni sem dæmigerða eða viðbótar fyrir starfsheiti. Einstakir starfsmenn hafa yfirleitt hluta af listanum — sniðinn að sérhæfingu og vinnuveitanda.
Dæmigerð (200)
Aðgangur um API