einkakokkur
ISCO 3434
Einkakokkar fara eftir matvæla- og hreinlætisreglum til að undirbúa máltíðir í þágu vinnuveitenda sinna. Þeir taka tillit til óþols vinnuveitanda síns fyrir tilteknum innihaldsefnum eða því sem þeir vilja helst og elda máltíðir á heimili vinnuveitanda. Einnig kann að vera farið á leit við einkakokka að skipuleggja lítil kvöldverðarboð eða aðrar veislur fyrir sérstök tilefni.
kökubakari
ISCO 3434
Kökubakarar eru ábyrgir fyrir því að undirbúa, elda og bera fram eftirrétti, sæta rétti og bökunarafurðir.
matreiðslumeistari
ISCO 3434
Matreiðslumeistarar eru sérhæfðir matvælatæknar með sköpunarhæfni og nýsköpun að leiðarljósi til að bjóða upp á einstaka matarupplifun.
yfirbakari kökubaksturs
ISCO 3434
Yfirbakari kökubaksturs stjórnar starfsfólki og tryggir undirbúning, matreiðslu og framsetningu á eftirréttum, sætabrauði og bökunarvörum.
yfirmatreiðslumeistari
ISCO 3434
Yfirmatreiðslumeistarar hafa umsjón með eldhúsinu til að hafa yfirsjón yfir undirbúning, eldamennsku og framreiðslu á matvælum.