húsvörður
ISCO 5153
Húsverðir viðhalda og fylgjast með ástandi og öryggi bygginga. Þeir þrífa, aðstoða við minniháttar viðgerðir og tryggja að þægindi á borð við hitun og heitt vatn séu tiltæk fyrir íbúa. Húsverðir bera ábyrgð á gæðum bygginga en þjóna einnig sem tengiliðir fyrir íbúa.
kirkjuvörður
ISCO 5153
Kirkjuverðir sinna umsýslustörfum fyrir kirkjur og sóknir og tryggja viðhald búnaðar. Einnig sýna þeir sóknarpresti og öðrum yfirmönnum stuðning. Þeir sinna einnig aðstoðarskyldum fyrir og eftir kirkjuviðburði svo sem að laga til, undirbúa búnað og að veita prestinum stuðning.
öryggisvörður í heimahúsi
ISCO 5153
Öryggisverðir í heimahúsum flytja inn í heimahús vinnuveitenda sinna til að viðhalda öryggi eignarinnar á meðan eigendurnir eru fjarstaddir. Þeir hafa eftirlit með inngangssvæðum og koma í veg fyrir að fólk sem ekki er með leyfi til þess komist inn í húsið. Þeir hafa eftirlit með ástandi eignarinnar svo sem pípulögnum, hitun og boða viðgerðarmenn ef þörf er á. Öryggisverðir í heimahúsum þrífa líka, áframsenda póst og borga reikninga.