pípulagningarmaður
ISCO 7126
Pípulagningarmenn viðhalda og setja upp vatns-, gas- og skólpkerfi. Þeir skoða rör og festingar með reglulegu millibili eða gera við eins og þörf krefur. Þeir beygja, saga og setja upp rör. Þeir prófa kerfi, aðlaga þau á öruggan hátt og fylgja reglugerðum. Þeir setja upp hreinsibúnað.
starfsmaður við veitulagnir
ISCO 7126
Tæknimenn áveitukerfa sérhæfa sig Í uppsetningu, viðhaldi og viðgerðum á vökvunarbúnaði, lögnum og öðrum vökvunarkerfum. Þeir starfrækja vélar, sem notaðar eru til að meðhöndla áveitukerfi og tryggja að farið sé að umhverfisstöðlum.
starfsmaður í fráveitukerfi
ISCO 7126
Starfsmenn í fráveitukerfum starfrækja fráveitukerfi sem fjarlægja og flytja skólpvatn og frárennslisvatn. Þeir skoða rör, dælustöðvar, og aðalæðar, leita að leka eða öðrum bilunum og til að gera við hvers konar vandamál. Þeir losa stíflur og annast viðhaldsskyldur, nota kerfiskort og sérhannaðan hugbúnað.
starfsmaður í vatnskerfum
ISCO 7126
Starfsmenn í vatnskerfum viðhalda leiðslum og dælustöðvum sem eru notaðar fyrir vatnsveitu, fráveitu og skólplagnir. Þeir annast áætluð viðhalds- og viðgerðarverkefni og losa stíflur í rörum og fráveitu.
sérfræðingur í uppsetningu vatnshreinsunarkerfa
ISCO 7126
Sérfræðingar í uppsetningu vatnshreinsunarkerfa setja upp kerfi til að endurheimta, sía, geyma og dreifa vatni frá ólíkum lindum, svo sem regnvatni og grávatni.
tæknimaður frárennslis
ISCO 7126
Tæknimenn frárennslis setja upp og viðhalda frárennslisbúnaði sem notaður er í frárennsliskerfum svo sem rör og loka. Þeir greina hönnunina og tryggja rétta uppsetningu frárennsliskerfisins og annast viðhald og viðgerðir.
tæknimaður gasþjónustu
ISCO 7126
Tæknimenn í gasþjónustu setja upp og viðhalda búnaði og kerfum fyrir gasþjónustu og kerfi í aðstöðu eða byggingum. Þeir setja búnaðinn upp í samræmi við reglur, laga bilanir og rannsaka leka og önnur vandamál. Þeir prófa búnaðinn og veita ráðgjöf um notkun og umhirðu tækja og kerfa sem nota gasorku.
tæknimaður á sviði hitakerfa
ISCO 7126
Tæknimenn á sviði hitakerfa setja upp og viðhalda gas-, rafmagns-, olíu-, fastaeldsneytis- og fjöleldsneytishita- og loftræstibúnaði, hvort sem er einstæðum hita- og loftræstikerfum eða innbyggðum í vélar eða flutningsbúnað. Þeir fylgja fyrirmælum og teikningum, annast viðhald á kerfum og öryggisprófanir og gera við kerfin.
uppsetningarmaður á baðherbergi
ISCO 7126
Uppsetningarmenn á baðherbergi setja upp tæki á baðherbergi. Þeir gera nauðsynlegar mælingar, undirbúa herbergið, fjarlægja eldri hluti ef nauðsyn krefur og setja upp nýjan baðbúnað, þ.m.t. tengingar á vatni, gasi, frárennsli og raflögnum.
uppsetningarmaður áveitukerfis
ISCO 7126
Uppsetningarmenn áveitukerfis smíða nauðsynlega innviði til áveitu jarðvegs, vanalega til notkunar í landbúnaði. Þeir geta verið sérhæfðir í einni eða fleiri gerðum fastra áveitukerfa.
uppsetningarmaður úðakerfis
ISCO 7126
Uppsetningarmenn úðakerfa bera ábyrgð á uppsetningu brunavarnarkerfa sem úða vatni. Þeir tengja leiðslur, rör og nauðsynlegan aukabúnað. Þeir annast uppsetningu úðakerfisins og prófa einnig kerfin.
verkamaður við fráveitugerð
ISCO 7126
Verkamenn við fráveitu setja upp fráveiturör til að flytja frárennsli úr mannvirkjum í vatn eða hreinsunarstöðvar. Þeir grafa skurði og koma rörunum fyrir í þeim og tryggja að þau séu með rétta vinkla og séu vatnsþétt. verkamenn í fráveitu smíða líka aðra hluta fráveitumannvirkja á borð við brunna og viðhalda og gera við kerfin sem fyrir eru.
verkamaður við viðhald leiðslukerfis
ISCO 7126
Verkamenn við viðhald leiðslukerfa starfrækja ólíkan búnað til að halda leiðslunum í nothæfu ástandi. Þeir annast athuganir vegna frávika og nota efnavörur samkvæmt þörfum og þrifamarkmiðum, t.d. til að forðast tæringu.
þjónustuaðili við rotþrær
ISCO 7126
Þjónustuaðilar við rotþrær hreinsa og viðhalda rotþróm. Þeir laga skemmdir og bilanir og tryggja að rotþrærnar séu hreinsaðar og þeim sé viðhaldið. Þeir starfrækja hreinsi- og viðhaldsbúnað í samræmi við öryggisferli.