búningameistari
ISCO 7531
Búningameistarar búa til , sauma, lita, aðlaga og viðhalda búningum sem notaðir eru í sviðslistum og í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Vinna þeirra byggist á listrænni sýn, skissum eða tilbúnum mynstrum með þekkingu á mannslíkamanum í forgrunni til að tryggja að sá sem klæðist þeim geti hreyft sig eins mikið og mögulegt er. Þeir starfa náið með hönnuðum.
hattari
ISCO 7531
Hattarar hanna og framleiða hatta og önnur höfuðföt.
hárkollumeistari
ISCO 7531
Hárkollumeistarar búa til, aðlaga og viðhalda hárinnlögnum til notkunar í sviðslistum. Þeir vinna samkvæmt skissum, myndum og listrænni sýn með þekkingu á mannslíkamanum í forgrunni til að tryggja að sá sem er með þær geti hreyft sig eins mikið og mögulegt er. Þeir starfa náið með hönnuðum.
kjólameistari
ISCO 7531
Kjólameistarar hanna, búa til, sníða, breyta og laga klæðskerasniðna, sérhannaða eða handunna kjóla úr textílefnum, léttu leðri, loðfeldi og öðrum efnu fyrir konur og börn. Þeir framleiða klæðskerasniðinn fatnað samkvæmt óskum viðskiptavinarins eða framleiðandans. Þeir geta lesið og skilið stærðarkvarða, smáatriði varðandi fullunnar mælingar og svo framvegis.
klæðskeri
ISCO 7531
Klæðskerar hanna, búa til, sníða, breyta og laga klæðskerasniðinn, sérhannaðan eða handunninn fatnað úr textílefnum, léttleðri, loðfeldi og öðrum efnum eða búa til hatta og hárkollur fyrir karlmenn. Þeir framleiða klæðskerasniðinn fatnað samkvæmt óskum viðskiptavinarins eða framleiðandans. Þeir geta lesið og skilið stærðarkvarða, smáatriði varðandi fullunnar mælingar og svo framvegis.
skinnmatsmaður
ISCO 7531
Skinnmatsmenn flokka skinn, húðir, krómsútun og skeljar samkvæmt náttúrulegum eiginleikum, flokki, þyngd og magni, staðsetningu, fjölda og göllum. Þeir bera samsafnið saman við forskriftir, veita upplýsingar um mat á þeim og eru í forsvari fyrir snyrtingu.