fatamynsturhönnuður
ISCO 7532
Fatamynsturhönnuðir túlka hönnunarteikningar og skera mynstur fyrir alls kyns fatnað með ýmsum handverkfærum eða iðnaðarvélum samkvæmt óskum viðskiptavina. Þeir taka sýni og gera frumgerðir til að framleiða mynstur í fatnaði í ýmsum stærðum.
hannar mynstur fyrir fatnað með CAD
ISCO 7532
Mynsturgerðarmenn sem vinna við tölvustudda mynsturgerð í fataiðnaði hanna, meta, aðlaga og breyta mynstrum, skurðarskipulagi og tækniskrám fyrir alls kyns fatnað með notkun tölvuhönnunarkerfa og eru eins konar tengiliðir við stafræna prentun, skurð og samsetningaraðgerðir, og meðvitaðir um tæknikröfur að því er varðar gæði, framleiðsluhæfni og kostnað.
matsmaður fataframleiðslu
ISCO 7532
Matsmenn fataframleiðslu búa til mynstur í ólíkum stærðum (stækka eða minnka) til að endurskapa sama fatnað í ólíkum stærðum. Þeir búa til mynstur handvirkt eða nota hugbúnað til að fylgja stærðarkvörðum.
mynsturgerðarmaður leðurvöru
ISCO 7532
Mynsturgerðarmenn leðurvöru hanna og skera mynstur í fjölbreyttar tegundir leðurvara með notkun fjölbreyttra handverkfæra og einfaldra vélverkfæra. Þeir hafa eftirlit með frávikum og meta efnisnotkun.
starfsmaður við fataskurð
ISCO 7532
Starfsmenn við fataskurð merkja, skera, móta og snyrta textíl eða skyld efni samkvæmt teikningum eða forskriftum í fataframleiðslu.
starfsmaður við stafrænar frumgerðir
ISCO 7532
Starfsmenn við stafrænar frumgerðir færir pappírsmynstur í stafrænt form með notkun sérstaks tölvuhugbúnaðar. Þeir starfrækja og fylgjast með vélum sem vinna ólíka framleiðslu sem tengist fatnaði.
tölvumynsturhönnuður leðurvöru
ISCO 7532
Tölvumynsturhönnuðir leðurvara hanna, aðlaga og breyta tvívíddarmynstrum með notkun tölvuhönnunarkerfa. Þeir hafa eftirlit með frávikum með því að nota tölvuhönnunarkerfi. Þeir meta efnisnotkun.